18.2.2012 | 21:54
Fésabók
Ég haf ekki bloggað í eitt eða tvö ár, ástæðan er þessi bansetta Fésabók, mér finnst allir vera þar, og letiblóðið ég nenni ekki að skrifa neitt, les bara með áfergju hvað aðrir gera svona dags daglega. Flestir drekka mikið kaffi, aðrir eru með fallegar myndir af mat, og aðrir taka óspart myndir af handavinnunni sinni, eða láta okkur vita að nú séu börnin farin að pissa í klósettið.
Ég var alltaf á móti þessari Fésabók, þar til að vinnufélagi minn taldi mér trú um að enginn væri maður með mönnum sem að ekki væri með á Fésabók, og var hann snöggur að bæði skrifa mig inn, og redda vinum, sem að ég reyndar þekkti líka. I dag á ég fullt af vinum, vissi ekki að ég ætti svona marga vini, og auðvitað hef ég laumast við að útvega mér vini, en flestir hafa leitað mig uppi, og er bara gaman að því.
Og mikið er nú hægt að gera á Fésinu, t.d hef ég fengið mejl frá nokkrum köllum, sem að vilja drekka kaffi með mér, þannig að ég er örugg á því að þar gætu konur í kallaleit nælt sér leikandi létt í menn, ekkert mál, leita uppi sæta kalla, senda þeim skilaboð um hvort þeir væru til að fá sér kaffi og með því, með henni, og þá á ég náttúrlega við meðlæti, eins og til dæmis kleinu eða ástarpung.
Þannig að Fésið gegnir mörgum hlutverkum, gamlir kunningjar endurnýja vináttu, einmana fólk eignast fésvini
Handavinnukonurnar koma vinnu sinni á framfæri, þeir sem að eru þreyttir á kreppunni geta komið skoðunum sínum á framfæri, og svona væri hægt að telja endalaust fram góðu hliðarnar á fésinu.
Verri hliðarnar eru, þegar að fólk er með aðdróttanir og söguburð á sama stað, og ljótt orðbragð er alltaf leiðinlegt, en það hef ég því miður rekist á, og ætti eiginlega að loka á þá sem að stunda, að koma að stað leiðindum.
Slæ botninn í þetta, ætla að líta við á fésinu, og sjá hvað vinir mínir eru að dunda sér við á þessu laugardagskvöldi
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2010 | 21:03
Óska ykkur ljúfs kvölds
Ég er orðin löt við bloggið, kalla það samt gott að það er bara rúmur mánuður síðan að ég bloggaði síðast.
Hér í Svíþjóð er mikill vetur, allt á kafi í snjó. Þegar að ég lít út um gluggana hjá mér, þá er óskaplega jólalegt, og það verða örugglega hvít jól í ár.
Ég held mig heima, og geri það síðasta fyrir mitt lítilfjörlega jólaboð, sökum slæmrar færðar eru flestir af gestum mínum búnir að afpanta plássin sín hjá mér, og varð það til þess að þegar að ég rúllaði kjötbollur ( já hér í Svíþjóðinni eru étnar kjötbollur á jólunum) þá tók því ekki að rúlla alltof margar, þannig að ég hafði tíma til þess að skella í eina súkkulaðiköku, ný uppskrift, mjólkursúkkulaði og ýmislegt annað, dásamleg kaka, ég er búin að smakka nokkuð oft, og þori ekki að hugsa um allar kaloríurnar, en það eru bara jól einu sinni á ári.
Ég les oft athugasemdir á FB, og hef tekið eftir því hvað fólk notar orðið ljúfur mikið í íslenskunni.
Ljúfan mín, eigðu ljúfan dag, vona að kvöldmaturinn verði ljúfur, ljúfust af öllum, er þetta orð í tísku, er ég svona hallærisleg að ég hef ekki upptvötað þetta fagra orð fyrr en nú.
Ég fékk bók í jólagjöf, gat auðvitað ekki setið á mér að rifa upp pakkann, og er þegar farin að lesa hana.
Bókin heitir" Ég man þig"eftir Yrsu Sigurðardóttur, frábær bók, en ekkert sérstaklega "ljúft" fólk í þeirri bók, vil ekki rekja atburði bókarinnar hérna, en ráðlegg ekki myrkfælnu fólki að lesa þessa annars velskrifinu bók.
Ég óska öllum sem að nenna að lesa þetta Gleðilegra jóla.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.11.2010 | 15:09
Þeldökka konan og Gunnar
Dagurinn í dag er góður dagur. Úti er allt á kafi í snjó, inni hjá mér er hlýtt og notalegt, held uppá aðventuna með blaðalestri og kertaljósum.
Margt áhugavert les ég í blöðunum á netinu
Ég les um þeldökku konuna sem að hefur stundað vændi í Reykjavíkurborg, og er sárt saknað af viðskiptavinum sínum, en mér datt svona í hug hvort að það væri ekki heimsóknartími í tukthúsinu fyrir aðdáendur hennar.
Ég les líka um Gunnar í Krossinum, og er sagt að hann sé ekki við eina fjölina felldur. Kemur til greina að Guðsmenn séu náttúrumeiri en venjulegir menn, af hverju kemur upp hvert málið á fætur öðru um presta og biskupa sem að ráða ekkert við sig í þessum málum.
Jólin nálgast, og myndarlegar húsmæður eru farnar að baka og bjástra fyrir jólin. Ég verð alsaklaus af öllum kökubakstri, kaupi frekar konfektkassa fyrir jólin, enda fámennt en góðmennt heima hjá mér.
Slæ botninn í þetta
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2010 | 19:03
Ym daginn og veginn
Mikið er nú langt síðan að ég hef bloggað.
En í dag er ég heima, og datt í hug að líta inn til mína gömlu blogg vina.
Margir af þeim eru á FB, og þar er ég líka, þó svo að ég líti á FB sem algjöran tímaþjóf, þá verð ég að viðurkenna að ég dunda mér mikið við spil og spádóma, og njósna um hversu marga kaffibolla vinir mínir hafa drukkið á morgnana, afar fróðlegt.
Spádómarnir eru líka meiri háttar, tvisvar þessa vikuna hefur því verið spáð fyrir mér að ég muni pissa í buxurnar, í annað skipti var það út af hlátri, í hitt skiptið sökum ölvunar, hvernig gátu spákortin vitað þetta.
Plat, auðvitað er ég löngu hætt að pissa í buxurnar, var hætt með bleyju þegar að ég var tveggja ára.
Ég hlusta mikið á stöð 2, gaman er að þessu blessaða stjórnmálafólki. Í dag hlustaði ég á mann og konu sem að kom ekkert sérstaklega vel saman, kom fram að konan var ekki öll þar sem að hún var séð, hún talar í síma, og var með á Hlemmi í einhverjum mótmælum, afar grunsamlegt fannst mér, en því miður dettur stöðin oft út hjá mér, og missti ég af endanum, hefði helst viljað fá að vita sögulok.
Ég les blöðin á netinu, og um leið athuga ég hvaða ævisögur mér líst best á. Og þá verð ég nú að viðurkenna að ég gæti vel hugsað mér að lesa ævisögu Jónínu Ben, gaman væri nú að lesa um ástarævintýri hennar og Bónus kallsins, skyldi hún koma með nýja bók næsta ár, ekki væri nú dónalegt að fræðast aðeins um Kross manninn og hana.
Svona verður það hjá hálf gömlum kellingum eins og mér, ekkert skeður í okkar eigin lífi, eina tilbreytingin er að lesa um ástarævintýri annarra, þar sem að við sitjum í upplituðum flónels náttfötunum okkar.
Nú slæ ég botninn í þetta, en hefði vel getað haldið áfram, en það verður að bíða betri tíma.
Óska öllum góðrar nætur
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2010 | 11:33
Hjálparstofnun
Það sem að mér fannst svo furðulegt við þessa frétt er að það var verið að opna aftur eftir sumarfrí.
Þurfti enginn mat á meðan að það var lokað vegna sumarleyfa.
Og undarlegt er hvað aðstaðan er léleg fyrir þetta vesalings fólk sem að neyðist til þess að sækja um þessa hjálp, að það komist ekki einu sinni á klósett.
Ekki get ég skilið Reykjavíkurborg sem að leigir húsnæði fyrir þessa stofnun, nær væri að útvega betra og ókeypis húsnæði, þar sem að hagur margra er orðinn það slæmur, og fátækt er orðin staðreynd í landi sem að eiginlega velti sér í auðæfum fyrir nokkrum árum síðan
|
Napurleg bið eftir nauðsynjavörum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2010 | 13:24
Ég les pressuna og ................................
Ég les Moggann og Pressuna á hverjum degi í fríinu mínu.
Er nýbúin að uppgötva Pressuna, sem að mér virðist vera ansi líkt DV þegar að það blað var uppá sitt besta.
Merkilegt er biskupsmálið, trúlega enginn vafi að kallinn hefur ekki haft hreina samvisku, en er ekki merkilegt að fara að draga upp þessi leiðindamál eftir andlát hans, hann getur ekki staðið til svars sjálfur, og þetta hlýtur að vera mikil pína fyrir fjölskyldu hans að það sé japlað á þessu löngu eftir eftir maðurinn er dáinn.
Mikið er skrifað um óhuggulega morðið á ungum efnilegum manni, og um leið birtar myndir af hinum og þessum sem að hafa þekkt þennan unga mann, get ég vel ímyndað mér Gróusögurnar sem að ganga um alla þá sem að eru yfirheyrðir, því að það vill oft gleymast að yfirheyrsla ekki sama og að vera sekur.
Vonandi næst sem fyrst í þann sem að framdi þennan viðurstyggilega glæp. Og votta ég fjölskyldu unga mannsins sem að var myrtur samúð mína.
Nú slæ ég botninn í þetta, en óska öllum góðs dags
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2010 | 14:34
Um allt og ekki neitt
Mikið er nú langt síðan að ég bloggaði, fleiri mánuðir, eða fjórir mánuðir nánar tiltekið.
Eins gott að myndast við að bæta úr þessu, og láta vita af að allt er í góðu lagi með kjellinguna, bara mikið að gera, og í miklu að snúast.
Ég kom heim úr vinnunni í dag, kom trítlandi í hælaskóm og þunnum sumartopp út í einhverja verstu hellirigningu sem að ég man eftir að hafa lent í, enda varð lítið úr fínheitunum eftir nokkrar mínútur, og sagði kunningjakonan sem að náði í okkur tvær, þið lítið út eins og blautir hundar greyin mín.
Spáin er ekki góð næstu daga, en veðurfræðingar hérna eru ekki sammála, sumir spá mikilli rigningu, aðrir ágætis veðri og sól, ég vil helst trúa á sólina, því að ég vil ekki trúa því að sumrið sé búið að yfirgefa okkur hérna á Skáni.
Mikið að gera í vinnunni, og ægilegur hiti eins og venjulega, við erum í sömu múnderingu sumar sem vetur, ágætis föt á veturna, og óþolandi á sumrin.
Barnafólkið fer mikið með okkur, oftast á leið til síns forna heimalands, og er mikil tilhlökkun að hitta vini og ættingja, oftast er keypt mikið Marabou súkkulaði og sænskt brennivín sem gjafir til gamla landsins frá nýja landinu, stundum ilmvatn fyrir frúna, þetta er gert í byrjun ferðarinnar, en þegar að fjölskyldan fer heim aftur, þá er lítið sem ekkert verslað, og fólkið virðist vera orðið hálf þreytt á hvort öðru, og börnin gráta meira en þau gerðu í byrjun ferðarinnar. Kemur til greina að fólk eigi ekki að vera of mikið saman, það er ekki vant því, venjulegar fjölskyldur hittast bara á kvöldin, pabbi og mamma vinna, og börnin eru á leikskóla, eða venjulegum skóla.
Um helgina byrjar svokallað Malmö festival, sem að stendur yfir heila viku, oft getur verið gaman að skreppa í bæinn og tilla sér niður á góðum stað, og horfa á fólkið sem að streymir um götur miðbæjarins. Alls konar rétti er hægt að kaupa, frá framandi löndum, ég sjálf er óttaleg bleyða og smakka ekki á neinum nýjungum, vel mér alltaf þrjá smá rétti á kinastöðunum, þá veit ég nákvæmlega hvað ég fæ.
Og nú slæ ég botninn í þetta. En óska öllum góðs dags.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.4.2010 | 20:00
Bara smá blogg
Mikið er nú langt síðan að ég myndaðist við að blogga.
En ég hef haft mikið að gera undanfarið, og nú er sólin farin að skjótast fram öðru hvoru, sem að verður til þess að ég og fleiri reynum að sitja úti og sleikja langþráða sólargeisla.
Engin aska hefur komið til okkar hérna á Skáni, og afar hljótt er uppi himninum, ég hef ekki orðið vör við flugvél í nokkra daga, sem að er eðlilegt, engar flugvélar hafa flogið frá Kastrup síðustu daga.
Það eru svoddan hörmungar út um allan heim, það liggur við að ég sé farin að trúa því sem að Vottar Jehóva hafa verið að reyna að troða inn í minn þykka haus, að heimsendir sé að nálgast með hraða.
Nú hefur vottum Jehóva ekki tekist að kristna mig, svo að ég fæ trúlega ekki að komast uppi Himnaríki, og klæðast hvítum kirtli og spila á hörpu, og blaka öðru hvoru með vængjunum mínum í takt við hörpuleikinn.
Nei ég lendi sennilega lengst niðri á vonda staðnum, hjá vonda kallinum, kannski verða kallarnir sem að sviku Island þar með mér, vonandi eiga þeir einhverjar millur eftir, því að ég er örugg á því að kallinn á vonda staðnum er með ýmislegt sem að kostar peninga, þar er enginn hörpuleikur.
Miklar uppsagnir eru í vinnunni hjá mér, allstaðar dregst saman, og ferðafólkið hefur svikið okkur fyrstu mánuði ársins.
Margir af mínum góðu vinnufélögum hafa verið kallaðir á eintal með forstjóranum, og koma sumir með tárin í augunum frá því eintali, enda ekki gaman að missa vinnuna í dag, og ákaflega lítið um vinnur í boði.
Ég slæ botninn í þetta, bara bestu kveðjur til bloggvina minna.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2010 | 22:28
Gullin mín
Þegar að ég setti inn myndir í gær þá varð það merkilegur ruglingur. Núna ætla ég
prófa
aftur, og sjá hvort að allt fer á stað aftur hjá mér
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.3.2010 | 20:34
Loksins blogga ég
Jæja ég ætla nú að myndast við smá blogg, mest er það nú útaf því að annars gætu mínir kæru bloggvinir haldið að ég væri nú búin að yfirgefa þennan heim, og farin að spila á hörpu uppí himnaríki, eða það sem að verra væri, að ég sæti fyrir neðan jörðu og spilaði póker við hann sem að býr þar.
En ég lifi við nokkuð góða heilsu, en með mikið annríki í kring um mig, er að berjast við að gera nýja heimasíðu, og um leið að taka myndir af gersemunum m
ínum, ég læt inn nokkrar myndir svona a
ð gamni.
Þetta voru ekki bestu myndirnar.En allt er á afar góðu verði, ég þori ekki að skrifa meira um verð, af hræðslu við að það sé haldið að ég sé að auglýsa vörurnar mínar.
Læt þetta gott heita, óska öllum góðrar helgi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 97472
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



blavatn
helgaluthersdottir
mammzan
totad
coke
huldumenn
ace
gattin
brandarar
mammann
jyderupdrottningin
gullaeinars
gurrihar
rannug
topplistinn
skjolid
tru
jackylynn
jakobk
jodua
nonniblogg
engilstina
katlaa
gummiimma
oliskula
sur
tigercopper
hrollvekjur
icekeiko





