Er hann að borga fyrir gamlan ost

Er hann að gera þetta fyrir almenning, að opna búðir með vörum á sanngjörnu verði, eða er hann að hefna sín á Baugs feðgum, og borga fyrir gamlan ost. Er þá Jónína í þessu dæmi hjá honum, hún hefur hingað til átt mikið ósagt um Baugs feðgana, ef að ég hef skilið dæmið rétt.
mbl.is Hyggst stofna lágvöruverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Hann stofnar (búð eða búðir) og hvað svo........Baugur kaupir hann bara út af markaðnum og hann fer með feitann tékka í sólina til Florida aftur.

Sverrir Einarsson, 14.12.2008 kl. 15:41

2 identicon

Skiptir það öllu máli? Er ekki öll samkeppni betri en það sem okkur býðst í dag? Svo efast ég um að hann fari að selja Baugfeðgum reksturinn þegar hann er að setja hann á legg gegn þeim. Man enginn eftir hugsjónum Jóhannesar í Bónus gegn Hagkaup á sínum tíma. Það var frábært. Nú þarf einhvern gegn Bónusveldinu. Skiptir máli hvaðan gott kemur? Betra verð er það sem Íslendingar þurfa.

Svo skilst mér að Jónína sé á leið inn í framsókn þannig að hún er líklega ekkert í þessu plotti.

Gott framtak ef það verður að veruleika. JEI

eva (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 15:53

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ósköp er þetta eitthvað barnalegt og sorglegt. Mér finnst raunar að umræðan á Íslandi snúist um að vera í liði með Davíð eða Jóni Ásgeiri. Málefnaleg umræðu skortir um aðgerðir fyrir fólkið í landinu sem er í vanda sem er að vaxa mörgum gjörsamlega yfir höfuð. Um fólkið sem er í vandræðum með að gefa börunum sínum að borða. Við verðum að vera vakandi fyrir svoleiðis hlutum frekar hvað Jón Gerald ætlar og ætlar ekki að gera.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.12.2008 kl. 15:54

4 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Sverrir, ég átti eiginlega erfitt með að verjast hlátri þegar að ég las þessa frétt, þessir blessuðu menn eru eins og smástrákar að leik í sandkassa

Eva, ég er verulega hlynnt því að fólki sé gefið tækifæri til að geta keypt vörur á góðu verði, hef samt ekki mikla trú á þessu, en hugmyndin er góð, og er ekki ágætt að Jónína sé komin í stjórnmál, eða verða Baugs bræður efst á dagskrá hjá Framsóknarflokknum

Hólmfríður, ég hef ekki mikið vit á þessu, en finnst þetta líkjast smákrökkum að leik, og enginn gerði neitt ljott af sér, en allir hinir gerðu það. Ég virkilega vorkenni öldruðum og fátækum heima sem að þurfa að líða fyrir þessa barnaleiki, og ekki má gleyma íslendíngum búsettum erlendis, sem að lifa á örorkubótum, og hafa bæturnar þeirra rýrnað um minnst helming, voru ekki háar fyrir, og virðist vera sem að einhverjir þurfi að hrökklast út frá heimilum sínum, þar sem að bæturnar duga ekki fyrir húsaleigu

Heiður Helgadóttir, 14.12.2008 kl. 16:29

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 14.12.2008 kl. 16:31

6 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Jónína, þetta er nú bara hlægilegthvað skyldu nú búðirnar eiga að heita JÓNUS er nú nokkuð gott nafn

Heiður Helgadóttir, 14.12.2008 kl. 17:23

7 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Og Eva, auðvitað átti ég við Bónus feðga, ég rugla þessum ættingjum saman

Heiður Helgadóttir, 14.12.2008 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband