30.10.2008 | 12:45
Þetta með að eldast
Öll verðum við eldri, það er jú lögmál lífsins. Þegar að ég var lítil, þá fannst mér fólk um tvítugt ekki eiga langt eftir, þegar að ég var tvítug þá fannst mér fólk á þrítugs aldri vera hundgamalt, og svona mætti lengi telja.
Í dag er ég ósköp venjuleg kelling á besta aldri finnst mér, en er trúlega hundgömul í augum unga fólksins.
Í gær skeði það sem að ég hef lengi óttast, ég tók strætó oní bæ, nennti ekki að hjóla. Strætó var fullur af fólki, kona á mínu reki (eða kannski 15 árum yngri) stóð upp og bauð mér sæti, ég ætlaði ekki að vilja þiggja boð hennar, en hún ýtti mér niður í stólinn.
Ég hef alltaf grobbað mig af því, að svo lengi sem að enginn sé farin að standa upp fyrir mér í strætisvagninum, þá finnist mér ég vera ung kona, nú er farið að standa upp fyrir mér. Ég hugga mig við það að allir aldrar hafi sinn sjarma.
Það þarf ekki að verða leiðinlegt að eldast, höldum við heilsu þá er hægt að lifa skemmtilegu lífi, kynnast nýju fólki, ferðast á milli landa (ef að einhver flugfélög eru þá eftir)
Það er hægt að vera í bófaleik með barnabörnunum, ömmur geta látið taka af sér djarfar myndir án þess að valda hneyksli, og jafnvel lenda í steininum fyrir ósiðsamlega hegðun.
Viagra gerið lífið léttara fyrir eldri herrana, enda þykir það ekki merkilegra eða meira en að taka inn lýsispillu á morgnana.
Þreytist maður á hrukkunum, þá eru til duglegir læknar, sem að strekkja á hrukkum, og lyfta upp hangandi brjóstum.
Svo hvað er að óttast, betra að gleðjast yfir því að eldast og vitkast um leið.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:46 | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einhverstaðar sá ég skrifað!!!Ég er alltof ung til að vera svona gömul haha,en er bara ekki ágætt að eldast í rólegheitunum humm
Guðný Einarsdóttir, 30.10.2008 kl. 12:56
Þú ert yndisleg Heidi mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 30.10.2008 kl. 15:20
Allur aldur góður, vinkona svo framarlega sem heilsan sé góð. Gamla fólkið er yndislegt, hugmyndaríkt og með myljandi húmor á mínum vinnustað. Samstarfsfólkið sem flest er á mínum aldri + eða - 10 ár er frábært, og allir dýrka öldungana okkar. Og aldrei að vita nema "unga kona" sem stóð upp fyrir þér í strætó hafi fengið slæman "sinadrátt í kálfa" og ORÐIÐ að standa upp!
Sigríður Sigurðardóttir, 30.10.2008 kl. 16:12
Þú er langflottust
Jónína Dúadóttir, 30.10.2008 kl. 18:01
Sæl Heidi mín.
Ertu búin að sækja um á ballettnámskeiðinu ? Keep on going!
Kærleikskveðjur!
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 03:58
Guðný, þetta voru frábær orð
Katla mín, takk og sömuleiðis
Sigga mín, þarna komstu með það, auðvitað var það sinadráttur sem að þjáði konuna
Jónína mín, takk og sömuleiðis
Þórarinn minn, er ekki búin að sækja um, en hef það í huga
Heiður Helgadóttir, 31.10.2008 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.