20.12.2008 | 20:06
Frá sólinni á Spáni
Í dag var meiri háttar veður um 20 stiga hiti, enda naut ég þess vel að sitja með litla bjórglasið mitt á uppáhaldsstaðnum mínum nálægt sjónum, og hlustaði á fólkið spjalla saman á næsta borði, ég held að þau hafi ekki gert sér grein fyrir að kellingin með plastpokana skildi málið þeirra, en ég lofa að ég seigi engum frá því sem að þið voruð að tala um.
Ykkur finnst kannski skrítið hvað ég er mikið ein, en sonur minn er fastur á skipinu sínu fyrir utan Nígeríu, og tengdadóttir mín er hárgreiðslukona með eigin stofu sem að hún þarf að sinna alla daga vikunnar nema á sunnudögum sem að er hennar frídagur, og á morgun verðum við saman og ætlum að skreppa á markað.
Ég læt þetta gott heita, óska öllum góðrar helgi.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér, bý líka á Spáni, hef það yndislegt.
Gott að hafa svona gott veður um hávetur.
Skemmtu þér vel á markaðinum.
Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Jólakveðja Brynja og Emma.
Brynja Dögg Ívarsdóttir, 20.12.2008 kl. 20:31
Jólakveðjur í Spánarsólina
Jónína Dúadóttir, 21.12.2008 kl. 12:24
Gleðileg jól til þín í sólina. Jólakveðjur
Kristín Gunnarsdóttir, 21.12.2008 kl. 16:19
Ó hvað þú átt gott að vera í sólinni og hitanum á spáni,hafðu það gott..og GLEÐILEG JÓL
Guðný Einarsdóttir, 22.12.2008 kl. 18:12
Brynja, þakka innlitið, sömuleiðis ósk um Gleðileg jól
Jónína mín, þetta er mikið gott letilíf, og er að verða flensulaus
Kristín, sömuleiðs, Góð og Gleðileg jól
Inga Rún, Sömuleiðis mín kæra
Guðný mín, já þetta er meiri háttar líf hjá mér, óska þér Gleðilegra jóla
Heiður Helgadóttir, 22.12.2008 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.