25.2.2009 | 10:54
Á leið í vinnuferð
Í dag er óttalega grátt í Malmöborg, farin er sólin sem að gladdi okkur í gær, ég var meira seigja með sólgleraugu, sem að hefur ekki skeð í lengri tíma.
Í litla húsinu sem að ég bý í er allt í ró og spekt, reyndar urðu háværar umræður um væntanlega húsaleiguhækkun hjá okkur íbúum hússins, en ég er með í félagi leigjanda, og er búin að fá tilkynningu um hækkun.
En Hans og Gunnel á fyrstu hæðinni þóttu það félag vera tómur hrossaskítur, og sögðu sig úr því , fyrst Gunnel, svo Hans eftir ákafar umræður um ósvífni mannsins sem að heilsaði uppá okkur, og var að athuga óstand og ástand íbúðanna sem að við leigjum.
Hann var meira að seigja svo frekur að hann drakk kaffi með okkur og át sig pakksaddan af nýbökuðum kanilsnúðum sem að Gunnel hafði sjálf bakað, samt gat hann ekki stoppað af væntanlegar hækkanir sem að voru nokkuð miklar fyrir nokkrum árum.
Þannig að skötuhjúin á fyrstu hæðinni sögðu sig úr félaginu, á þeim forsemdum að þetta félag gerði ekkert annað en að sjúga út peninga af fátækum leigjendum, og um leið gætu þeir verið þekktir fyrir að þiggja bæði kaffi og heimabakað hjá hjá þeim.
Ég er að undirbúa mig fyrir vinnuferð, heil vika er framundan, í vonandi sæmilegu veðri. Óska öllum góðrar viku.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Óska þér góðrar viku ljúfan mín og dásamlegs veðurs
Jónína Dúadóttir, 26.2.2009 kl. 06:29
Gangi tér vel...Já vedrid var yndislegt ég var líka med sólgleraugu.
Vid hvad starfar tú???
knús
Gudrún Hauksdótttir, 26.2.2009 kl. 07:13
Þakka þér fyrir það kæra Jónína
Guðrún, ég vinn á ferju á milli Svíþjóðar og Þýskalands eins og að hefur komið fram í blogginu hjá mér, í dag er ég sölukona, vann áður í upplýsingum, og var hundleið á bæði kvörtunum og að reikna peninga alla daga, varð þeirri stund fegnust að það starf var lagt niður, og sel núna farþegum ilmvötn, brennivín ásamt mörgu öðru.
Takk fyrir kveðjuna Helga mín.
Heiður Helgadóttir, 26.2.2009 kl. 16:37
Heidur mín.Èg er stundum en bara stundum nefnilega med gullfiskaminni svo sorrý tú ert örugglega búin ad segja mér frá tessu ádur.Nù ætla ég ad muna tad :)
Hilsen
Gudrún Hauksdótttir, 28.2.2009 kl. 07:23
Jaso, auðvitað áttu þau Gunnel og Hans að fá "snúða- og kaffiafslátt" á hækkun þessa, segir sig sjálft! En flott nafn á félagi: Hrossaskítsfélagið....þarf að koma upp einu slíku hér.
Knús á þig!
Sigríður Sigurðardóttir, 2.3.2009 kl. 18:13
Kvitta fyrir innliti mínu
Guðný Einarsdóttir, 3.3.2009 kl. 19:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.