18.3.2009 | 07:39
En veðrið er gott
Ég hef ekki haft mikinn tíma til að blogga, og ennþá minni tíma fyrir lestur bloggs. Ástæðan er sú að mikið hefur verið að gerast í vinnunni hjá okkur, salan hjá okkur er ákaflega góð reiknuð í prósentum, en þrátt fyrir það eru uppsagnir, og eru margir af mínum góðu vinnufélögum búnir að skrifa undir uppsögnina sína.
Þetta skapar mikla óró hjá okkur öllum, ég geng með hnút í maganum, sá sem að ég vinn mest með, var látinn skrifa undir í morgun, piltur sem að er bæði duglegur og samviskusamur, einn af þeim bestu hjá okkur.
En veðrið er gott hjá okkur á Skáni, blessuð sólin er farin að líta til okkar öðru hvoru, og eiginlega er orðið svolítið vorlegt, fuglasöngur og svei mér þá ef að grasið er ekki orðið grænna.
Í kvöld fer ég heim til Íslands, flug frá Kastrup, alltaf er gaman að rölta um á Kastrup, en verðin eru ekki til að leika með, og ekki hefur það batnað við lækkun sænsku krónunnar, en einn danskur hundraðkall kostar 150 sænskar krónur.
Ég læt þetta gott heita.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vona að þú haldir vinnunni mín kæraEigðu góða flugferð og góða skemmtun
Jónína Dúadóttir, 18.3.2009 kl. 17:58
Vonandi heldur tú tinni vinnu kæra Heidi mín.Góda ferd til Ìslands.Mig langar líka svo mikid ad skreppa en get ekkki farid núna.
KNús til tín.
Gudrún Hauksdótttir, 20.3.2009 kl. 07:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.