Færsluflokkur: Bækur
3.12.2008 | 08:25
Ekki veit ég hvort að þessi dómur...........
Ekki veit ég hvort að þessi dómur kom mér á óvart. Það er hefur alltaf verið gerður mikill munur á honum Jóni og Séra Jóni.
Venjulegi Jóninn hefði verið talinn vera dónakall, en Sérann er bara yfirfullur af straumum, er svona að velta fyrir mér hverskonar straumar það voru, voru það helgir straumar sem að þjáðu hann.
Um leið á ég erfitt með að trúa því að unglingsstúlkur hafi verið að gera úlfalda úr mýflugu í þessum kærum, ég held ekki, þeim hefur þótt þetta vera bæði óþægilegt og pínusamt, að presturinn lét svona við þær, enda óskaplega ósmekklegt af presti að haga sér svona við óharðnaða unglinga.
![]() |
Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
2.12.2008 | 15:42
Hún vissi hvað hún söng
Hún vissi hvað hún söng sú gamla. Karlmannsleysi hefur aldrei drepið neinn, og hófleg drykkja er nú bara góð fyrir heilsuna, ég man eftir viðtali við gamlan mann, hann var farin að nálgast 100 árin, og þakkaði sínum háa aldri og góðu heilsu því, að hann fékk sér matskeið af koníaki á hverjum deigi. Ekki man ég hvort að hann hafði nokkurn tíma átt konu, ef svo var þá var hún löngu dáin, enda hafði hún þá hvorki verið karlmannslaus, eða fengið að smakka á koníakinu.
![]() |
Þakkaði langlífið koníaki og skírlífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.12.2008 | 15:21
Frábær fyrrverandi forseti
Þarna sagði Vigdís sönn og rétt orð. Ég var alltaf stolt af þessari fallegu konu þegar að hún var forsetinn okkar. Betri þjóðarkynningu en hana gátum við íslendingar ekki fengið á sínum tíma.
Ég sem að er búsett erlendis varð oft vör við að fólki fannst mikið til þess koma, að kona væri forseti í litla landinu okkar, margir mundu nafnið hennar, þó sérlega karlmennirnir, en það var vegna þess að þeim fannst hún vera svo hugguleg, og hún var allstaðar erlendis til mikils sóma fyrir landið okkar.
![]() |
„ Særandi að vera sakaður um glannalegar athafnir “ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2008 | 10:46
Lét sig hverfa með 12 milljarða
![]() |
Danskur forstjóri stakk af með 12 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2008 | 20:39
Vargastefna..............................
![]() |
Vargastefna við Stjórnarráð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.12.2008 | 16:10
Ekki veitir vist af
Ég hef nú grun um að þetta eigi eftir að koma sér vel, margir eru búnir að missa vinnuna, eða eru að fara að missa vinnuna, og örugglega er ekki létt að tóra af mögrum atvinnuleysisbætum, svo að ég minnist ekki á öryrkjana sem að höfðu það nógu erfitt fyrir kreppuna, að láta styrkinn duga fyrir mat og húsnæði. Og svo er allt heimilislausa fólkið, sá hópur á trúlega eftir að stækka í vetur.
![]() |
Söfnun í Vesturheimi til styrktar Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.12.2008 | 15:26
Um börn
Ég skemmti mér alltaf jafn vel þegar að ég les hvað börn skrifa, börn seigja alltaf sannleikann, það gera nú fyllibytturnar líka, en það er önnur saga.
KÆRI GUÐ!
ÉG FÉKK KJÖTBOLLUR Í HÁDEGINU, HVAÐ FÉKKST ÞÚ.
KÆR KVEÐJA
ANNA MARÍA
=========================================
KÆRI GUÐ!
ÉG ELSKA ÞIG GUÐ. Í REIKNINGSTÍMANUM KOM INN HUNDUR. KRISTINA
================================================
KÆRI GUÐ!
HVAÐAN KEMUR ALLT FÓLK, ÉG VONA AÐ ÞÚ GETIR ÚTSKÝRT ÞAÐ BETUR EN PABBI:
VALTER
============================================
KÆRI GUÐ!
AFHVERFU STENDUR EKKI FRÚ GUÐ Í BIBLÍUNNI. VARSTU EKKI GIFTUR ÞEGAR AÐ ÞÚ SKRIFAÐIR BIBLÍUNA.
LARRY
=========================
KÆRI GUÐ!
ÉG ER BÚIN AÐ LESA ALLA BIBLÍUNA, OG FANNST HÚN GÓÐ, ERTU BÚINN AÐ SKRIFA FLEIRI BÆKUR.
ALICE
===================================
KÆRI GUÐ
EF AÐ ÞÚ VILLT EKKI AÐ FÓLK BLÓTI, AVHVERJU VARSTU ÞÁ AÐ BÚA TIL BLÓTSYRÐI
====================
KÆRI GUÐ!
REIKNAÐU MEÐ MÉR. ÞINN VINUR HUBBI
========================
Fyrir fjölda mörgum árum var ég að fara í göngutúr með systur minni og tveimur börnum hennar. Fyrir utan húsið heima hjá henni stoppar leigubíll, út úr leigubílnum veltur bifvélavirkinn á fyrstu hæðinni svo fullur að ég hef sjaldan séð annað eins, hann hreinlega valt um götuna og átti erfitt með að komast á fætur. Systir mín hnussaði og sagði eitthvað á þessa leið "að sjá þennan viðbjóð, mígandi fullur um miðjan dag", en þá gall í fjögra ára stelpunni hennar, "hann er ekki fullur mamma", "hvernig veistu það" seigir systir mín, "ég spurði hann" svaraði sú fjögra ára, "og hann sagði nei".
Slæ botninn í þessa barnaspeki mína.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2008 | 07:54
Fyllibytta á Austurvelli
Þetta var stórfengleg frétt, fyllibytta girðir niður um sig og gerir stykkin sín á Austurvelli. Var hann ekki bara að mótmæla kreppunni með þessu atferli sínu, hann hreinlega skeit á alla vitleysuna heima.
![]() |
Gekk örna sinna í runna á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 07:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
1.12.2008 | 07:14
Bloggleti
Þar sem að ég er búin að þjást af bloggleti, og um leið verið löt að lesa öll blöð, bæði sænsk sem íslensk, þá hef ég ekki látið ljós mitt skína hér á Moggablogginu, ég held nú varla að mín hafi verið sárt saknað, en ætla samt að reyna að koma einhverju af viti frá mér.
Hér í Svíþjóðinni er alltaf sama gráa vetrarveðrið, það liggur við að ég sé farin að óska þess að það komi smá snjór, þó ekki væri nema í einn dag, reyndar kom smá föl hérna fyrir nokkrum dögum, en þá var ég í miklum vinnu önnum, og hafði engan tíma til að fara í land, með snjónum kom mikil hálka og urðu ótal árekstrar og fjöldi fólks datt á götum borgarinnar, þeir óheppnu brutu eða brákuðu bein, hinir sluppu ómeiddir.
Á laugardaginn var ég ásamt vinkonu minni á kappreiðum, sem að eru haldnir hér í Malmöborg öðru hvoru, óskaplega mikið fólk mætti á staðinn, ekki veit ég hvort að margir af þeim sem að stóðu í kring um okkur fóru sem nýríkir heim til sín, við tilheyrðum ekki þeim hóp, okkur tókst að velja alla hesta sem að ekki unnu, og var það þó nokkur vandi, þannig að við fórum fátækari heim en við komum, en áttum skemmtilegan dag.
Nú slæ ég botninn í þetta.
Bækur | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.11.2008 | 08:46
Og þá er kominn miðvikudagur
Og þá er kominn miðvikudagur, eftir einn og hálfann tíma kemur einkabílstjórinn og nær í mig, eins gott að fara ekki að tala um neitt sem að kemur henni í uppnám, það er nefnilega hálka sumstaðar, og ég vil endilega komast á áfangastað, án þess að lenda í díki fyrir utan veginn.
Svo að ég má ekki minnast á vissan mann sem að hún ekki þolir, en hann á til að krítisera þýskuna hennar, með þeim afleiðingum að hún átti erfitt með svefn í nokkrar nætur fyrir stuttu síðan. Svo að best er að við bara röbbum um flugmiðann minn hjá Sterling sem að gufaði upp, og nýja miðann minn sem að er keyptur hjá norsku flugfélagi, sem að fer vonandi ekki á hausinn fyrir áramót.
Spáin er ekki góð, það verður mikill veltingur, veðurguðirnir hafa eitthvað mikið á móti okkar vakt, það eru oft slæm veður þegar að við vinnum, en sem betur fer erum við vel sjóuð, göngum náttúrlega stundum eins og að við höfum misst eitthvað í buxurnar, eða séum bara ansi hátt uppi.
Alltaf er gaman að hitta vinnufélagana, nú eru þrjár vikur síðan að við sáumst, og verður mikill hlátur í messanum, þegar að við fáum okkur fyrsta kaffibollann, og teljum upp allt það sem að hefur skeð hjá okkur á þessum þremur vikum. Ég á eftir að lýsa kanilsnúðnum mínum, við fögnuð áhorfenda, fæ kannski uppskrift af snúðum sem að lyfta sér.
Nú slæ ég botninn í þetta, ég á eftir að líta inn til ykkar í vikunni. Óska öllum alls góðs.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar