Færsluflokkur: Dægurmál
17.9.2008 | 15:23
Komin heim
Jæja, þá er ég komin heim eftir annasama viku, ástæðan fyrir þessum önnum hjá okkur er sú að nú erum við tvö á vakt, vorum áður þrjú, en allt gengur út á spara, og um leið erum við kvött til þess að selja aðeins meira í dag, en við gerðum í gær.
En hvað um það, ég hef ekki haft tíma fyrir blogg eða lestur Moggans, sá samt að ein fegurðardísin hafði lent í uppskurði, og er bara að gleðjast yfir því að aðgerðin heppnaðist vel. Um leið veit ég eftir öruggum heimildum að hún Gunna Gunnars var líka að koma úr aðgerð, en ég hef ekki getað fundið neitt um það í blöðunum.
Mér finnst stórsniðugt að borgarstjórinn í Reykjavík sé farin að svara sjálf í síma, þarna er náttúrlega verið að spara.
Ég slæ botninn í þetta, er nefnilega á kafi í eldamennskunni núna, á borðstólum verða hrossabjúgu með uppstúf, alíslensk bjúgu lætt inn í landið fyrir nokkrum mánuðum.
Ég skammast mín fyrir að vera ekki búin að svara skilaboðum frá mínum kæru bloggvinum, en ég verð nú komin í betra stuð á morgun, og reyni þá að bæta ráð mitt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2008 | 20:30
Blessaður bletturinn
Eftir að ég las þessa frétt fór ég að velta fyrir mér göngulagi vina og vandamanna.
Ég byrjaði á nágrönnum mínum, Gunnel er reyndar hölt í dag, en áður en að hún varð hölt, þá er ég ekki frá því að hún hafi skálmað svolítið áfram, ég veit ekki hvort að hún hreyfði sig munúðarfullt, en frekar frjálslega, það hlýtur að vera vottur þess að hún hefur fengið djúpa fullnægingu, svona þegar að hún var þeim bransanum. Hún er löngu hætt kallafari, nú spilar hún bara Canasta, en ég er fegin að ég þarf ekki að óttast um andlegt heilbrigði hennar.
Hjúkkan trítlar, þegar að hún er á labbi með Alex syni sínum, ætti ég að benda henni á líkamsæfingar og sjúkraþjálfun, yrði hún glöð og þakklát ef að ég myndi minnast á þetta við hana. Kannski veit hún ekki að G bletturinn er til, ég gæti svosem sagt henni frá honum, en það eru margir sem að ekki hafa fundið hann, af einhverjum undarlegum ástæður er þessi G blettur oftast í felum.
Ég þori ekki að hugsa út í göngulag nána ættingja minna, sumir skálma áfram, nú veit ég af hverju. Hvernig ég geng, ég hreyfi mig frekar léttilega, en þakka það hlaupum á brettinu, ekki er það út af, ofsastórum G bletti.
![]() |
Göngulagið kemur upp um G-blettinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar