13.11.2008 | 16:49
Enn einn
Eitthvað mikið er að þegar að tólf ára barn er komið í samband við tvítugan mann, og vill hitta hann.
Og það sýnir bara það sem að allir vita, að netið getur verið hættulegt, og börn geta freistast til þess vera inn á stöðum sem að eru alls ekki fyrir óharðnaða unglinga.
Undir venjulegum kringumstæðum finnst tólf ára krökkum fólk um tvítugt vera ævagamalt, og hafa engan áhuga á að umgangast þessi gamalmenni.
Og auðvitað hefur maðurinn séð að hann var komin í samband við barn, og hver heilvita maður hefði ekki látið sér detta í hug að hafa kynmök við barnið, eða yfirleitt að vera í sambandi við telpuna.
![]() |
Fangelsi fyrir samræði við 12 ára stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.11.2008 | 09:07
Fingralangir Svíar
Fræg hér í Svíþjóð er sagan um kellingu sem að fór út í búð og stal frosnum kjúkling, kellingin var með hatt á hausnum, og tróð hún kjúklingnum undir hattinn. Við kassann lenti hún í langri biðröð, kjúklingurinn var kaldur, og leið yfir þá gömlu í biðröðinni. Þannig að hún missti bæði hattinn og kjúklinginn, þarf varla að taka fram að hún át engan kjúkling þann daginn.
![]() |
Svíar þjófóttastir á Norðurlöndunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 13. nóvember 2008
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.7.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 99591
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar