Föstudags hugleiðingar

Ég sit hérna fyrir framan tölvuna mína, og bara býð eftir því að geta fyllt hlunkinn minn af angandi Arvid kaffi.

 Um leið horfi ég á fréttir í sjónvarpinu, flestar fréttirnar eru leiðinlegar, er allt að fara til fjandans alls staðar, og ofan á allt, er veðurspáin slæm, mikill stormur er á leiðinni til okkar, og í Mogganum sé ég að það er kominn snjór heima á Íslandinu okkar.

Mikið er ég stundum fegin því að vera bara ósköp venjuleg blönk kelling, ég þarf ekki að hafa áhyggjur að að miljónirnar mínar verði að engu í bönkum og verðbréfum.

Ég er farin að spara á þessum erfiðu tímum, ég er hætt að kaupa slúðurblað dagsins, og spara þar tíu sænskar krónur á hverjum deigi, og þeim tíkalli sting ég niður í hann Snata minn(sparibaukinn minn) samviskusamlega á hverjum degi. Snati er farinn að þyngjast mikið, og er ég ekki frá því að hann sé glaðlegri á svipinn þessa dagana.

Ég skoða bara í búðum, hef sparað mikla peninga á því, ég laga mat fyrir nokkra daga í einu(mikið er nú örbylgjuofninn góð uppfinning).

Ég er ekki farin að róta í ruslatunnum í leit að tómum flöskum, en las um mann sem að safnaði flöskum og safnaði saman aurunum sem að hann fékk fyrir þær, hann dó sem margfaldur miljónamæringur.

Mikið er ég þakklát mínum kæru bloggvinum, sem að eru að leita eftir manni fyrir mig, og er ég örugg á því að einn góðan veðurdag bankar upp myndarlegur húslegur maður, en svona til öryggis, kaupið ekki farmiða fram og til baka fyrir hann.

Nú slæ ég botninn í þessar föstudags hugleiðingar mínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Heidi Helga mín.

Er kallinn kominn sem ég sendi þér.

Hann er í stuttbuxum,íslenskum ullarsokkum annar grár hinn hvítur(sá á hægri fæti),Hann heitir Olli Golli virkilega góður kall ,og svara kallinu jolli.

Heyrumst.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 08:45

2 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Hann er ekki kominn Þórarinn minn, vonandi er hann ekki að villast hérna í stórborginni hefði nú verið gott ef að hann hefði komið í dag, og þurrkað gólfin fyrir mig.

Heiður Helgadóttir, 3.10.2008 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 99437

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband