Góðan daginn

Góðan og blessaðan daginn, öll sömum.

Hér sit ég á gráum miðvikudagsmorgni í Malmöborg, og er með hlunkinn minn fullann af nýlöguðu Arvid kaffi, ég nýt þess að sitja hérna fyrir framan tölvuna mína, ég drekk kaffið mitt, dáist að því hvað kaffið er gott, ég kveiki í sígarettu(þetta átti ég ekki að skrifa) ég lít út um gluggann, og horfi eftir götunni minni, ég sé konu með stórann svartan hund, hundurinn pissar á ljósastaur, konan bíður á meðan, þegar að hundurinn er hættur að pissa þá halda þau áfram ferð sinni, ég horfi á eftir þeim og tek eftir því að konan er í náttfötum undir kápunni, kannski ætlar hún að skríða uppi aftur, og kannski fær sá svarti að kúra til fóta hjá henni.

Ég gladdist mikið þegar að ég sá frétt þess efnis að súkkulaði væri gott fyrir heilsuna, ég sem elska súkkulaði, en læt sjaldan eftir mér að fá mér súkkulaði, vegna hræðslu minnar við að verða of feit. En nú fer ég að láta eftir mér súkkulaðiát, hvað gerir maður ekki til að halda heilsunni, því dýrmætasta sem að við eigum.

Ég er búin að pakka fyrir vikuferð að heiman, stundum finnst mér ég búa í ferðatösku, en hugga mig við að ég sé með vinnu, það eru ekki allir svo lánsamir.

Ég óska öllum góðrar viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ja elskan mín, ég hefði nú getað sagt þér þetta með súkkulaðið og mín rannsókn var sko alveg ókeypis nema fyrir mig og er búin að standa yfir í mörg, mörg ár  Ég hef nefnilega alltaf haldið því fram að súkkulaði er hollt... að minnsta kosti fyrir sálina

Gangi þér vel í vinnunni mín kæra og komdu heil heim

Jónína Dúadóttir, 22.10.2008 kl. 07:09

2 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Þetta var besta frétt lengi, gott að eitthvað jákvætt kemur mitt í öllu krepputalinu.Eigðu góða viku kæra Jónína

Heiður Helgadóttir, 22.10.2008 kl. 07:22

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Sammála Jonínu med súkkuladid.....Bætir hressir og kætir.

gangi tér vel á ferdinni um borgir og bí.

Eigdu gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 22.10.2008 kl. 09:05

4 identicon

Sæl Heidi Helga.

Sirius suðusúkklaði á 3 hæðum, ég mæli með þvi.

Kærlekskveðjur

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 07:39

5 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Ég tók ykkur á orðinu, ég át fullt af súkkulaði í gær, allt er nú gert fyrir heilsuna, bestu kveðjur til Jónínu, Dönsku drottningunnar og síðast og ekki síst Þórarinns.

Heiður Helgadóttir, 23.10.2008 kl. 15:48

6 identicon

hvorki meira en kg af súkkulaði á dag kemur skapinu í lag... engir tollar á súkkulaði í innkaupakörfunni minni  

Helga Lúthersdóttir (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 18:44

7 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Súkkulaði er bara snilld....gott fyrir líkama og sál Candy 





Sigríður Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband