4.11.2008 | 20:53
Andlausi dagurinn
Dagurinn í dag er búinn að vera andlausi dagurinn minn, hafið þið ekki orðið fyrir þessu. Ég hef sest fyrir framan tölvuna ætlað að skrifa eitthvað viskulegt(svona einu sinni), en ekki getað komið neinu skammarlaust frá mér.
Ég er búin að lesa DV, mér finnst gaman að DV blaðinu, vonaðist til þess að lesa krassandi fréttir þar, svona til að koma heilabúinu í lag, hélt að frétt um Harrison Ford væri um ólifnað hans í Hollywood, að kallinn velti sér í sukki og svínaríi, nei, nei, þá er mannrolan klæddur baunagrasabúningi, og þetta þykir fréttnæmt. Ég hef aldrei þolað Harrison Ford, alltaf fundist kallinn líta út fyrir að þjást af mikilli tannpínu, og vera stútfullur af verkjapillum.
Hér er sama gráa veðrið, rigningarsuddi og hálfgerð þoka seinni partinn, fólk sem að maður mætir á förnum vegi, er vetrarlega klætt, og flestir komnir með húfur dregnar niður fyrir eyru.
Ungir menn þeysast um bæinn á vespum, tveir saman, annar keyrir hinn slítur veski af gömlum konum, eða að þeir stoppa og gefa sér tíma til að ræna símum og peningaveskjum af (oftast) eldri mönnum.
Þetta er fólkið sem að á að taka við af okkur, sem betur fer eru ekki allir svona, en alltof margir.
Óska öllum góðrar nætur.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða nótt mín kæra
Guðný Einarsdóttir, 4.11.2008 kl. 21:40
Það verða allir andlausir annað slagiðGóða nótt elskuleg
Jónína Dúadóttir, 4.11.2008 kl. 22:17
Gódann daginn Heidi mín ...Vonandi svafstu vel .....Og andinn kominn yfir tig.
Eigdu gódann dag.
Gudrún Hauksdótttir, 5.11.2008 kl. 06:48
Elsku Heidi, þakka þér fyrir sendínguna, ég er bara orðlaus.
Kærleikur og ljós til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 5.11.2008 kl. 10:22
Guðný mín, ég svaf vel fyrir framan sjónvarpið
Jónína, þetta með að verða andlaus, er slæmt, ég er nú vön því að vera með heila og kjaftinn með mér
Jyderupdrottningin, þakka þer fyri það mín kæra, andinn er betri í dag
Kristin, lítið að þakka, bara njóttu þess, þó að lítið sé
Heiður Helgadóttir, 5.11.2008 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.