Ég og Hans fórum til Hjálpræðishersins

Í dag er grenjandi rigning og rok hérna í Malmö, og ég sem að ætlaði að sjokkera nágranna mín með því að þvo nokkra glugga, nú er ég löglega afsökuð, því hver fer að þvo glugga í rigningu.

Í gær sá ég nágranna minn hann Kristján fuglaskoðunarmann þvo eldhúsgluggann hjá sér, hann brosti út undir eyru þegar að hann sá mig, og kallaði út til mín að nú væri kominn tími fyrir jólaseríuna.

Ég fór með Hans á fyrstu hæðinni til Hjálpræðishersins með alla fatapokana mína, það lá við að hann signdi sig þegar að hann sá hvað pokarnir voru margir, hann var ekki sáttur við að Hjálpræðisherinn fengi fötin mín og skóna." Þetta pakk er ekkert nema peningurinn" sagði hann, og gaf í, "okurverð á öllu hjá þeim, og svo stela þeir sjálfir bestu hlutunum", bætti hann við. Ég hélt með honum, svona til að halda friðinn, það eina sem að ég vildi, var að losna við pokana, sem að höfðu tekið alltof mikið pláss á stofugólfinu.

Á leiðinni til ræningjanna sem að vinna hjá Hjálpræðishernum mættum við flottum bíl, svo flottum að ég sá ekki hvaða tegund það var, og líka vegna þess að ökumaður bílsins var þeldökkur, og komst mikill æsingur í Hans þegar að hann sá þennan þeldökka mann, "sérðu þetta" sagði hann og sló í kring um sig, " kolsvartur aumingi á rándýrum bíl, náttúrlega er hann að koma frá félagsmálastofnuninni, búinn að sníkja peninga þar, áður en að hann fer oní bæ að selja eiturlyfin sín", ýmislegt annað miður fallegt kom á eftir, svona orð sem að ekki er hægt að setja á prent.

Þegar að við vorum loksins komin til Hjálpræðishersins þá hjálpaði Hans mér með pokana, konan sem að tók á móti þeim var þeldökk, hún var ákaflega kurteis og þakkaði mér mikið vel fyrir alla pokana, hún þakkaði Hans líka fyrir pokana.

Þegar að við komum út í bílinn þögðum við, ekki var minnst meira á dökku vesalingana.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Heidi mín, þú verður bara að gefa honum Hans DVD-disk með Martin Luther King að halda ræðuna sína: "I have a Dream" í jólagjöf!  Kannski sljákki þá aðeins á hatrinu í karli.

Sigríður Sigurðardóttir, 15.11.2008 kl. 17:03

2 identicon

Dökku vesalingana!!?

gudrun (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 02:41

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi Hans greyið...... hann er ekki mjög ánægður maður

Jónína Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 08:08

4 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Sigga mín, hann er dæmagerður svíi af eldri kynslóðinni.

Guðrún, passaði aumingjana betur

Jónína, hann er fæddur svona

Heiður Helgadóttir, 18.11.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 99393

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband