Og þá er kominn þriðjudagur

Ég er búin að þjást af bloggleti, hef lesið helstu fréttir á netinu, gladdist þegar að ég las um góða mætingu á Austurvelli, gott hjá ykkur íslendingum að rísa upp og mótmæla svínaríinu, og þó svo að nokkur egg hafi lent á alþingishúsinu, hvað um það, þið voruð bara að skapa vinnu í atvinnuleysinu.

Ég sit hérna á þriðjudagsmorgni og er að velta fyrir mér hvað ég sé búin að afreka á þessum þremur vikum sem að ég er búin að vera heima frá vinnunni. En eins og að ég hef áður skrifað, þá fór ferjan okkar í slipp, enda orðin dauðþreytt(ferjan) á rúntinum á milli Svíþjóðar og Þýskalands, vélarnar voru endalaust að fara í pásu, við vorum í sæluvímu ef að allar fjórar gengu samtímis, þá vissum við að við héldum tíma áætlun.

Ég hef ekki bakað laufabrauð, ég er ekki búin að baka tíu smákökusortir, ég er ekki búin að hnoða í nokkrar randalínur, en mér tókst að baka kanilsnúða um daginn, eitthvað urðu þeir skrítnir, enda í fyrsta skipti sem að ég baka með geri sem að á að lyfta sér eftir kúnstarinn reglum. Bragðið var nokkuð gott, en útlitið var ekki eins gott, "þú hefur ekki látið snúðana lyfta sér" sagði Hans á fyrstu hæðinni, og þurrkaði mylsnuna úr munnvikunum áður en að hann greip næsta snúð, sem að hvarf oní hann á nokkrum sekúndum. Þannig að bragðið var nokkuð gott, enda á maður aldrei að dæma eitt eða neitt eftir útlitinu.

Í gær þvoði ég nokkra glugga, vökvaði blóm og tókst að reka löppina á mér í stólfót með svo miklu afli að ég er draghölt, það verður gaman að dragast um í hælaskóm á morgun, en á morgun tekur alvara lífsins við, ég þarf að fara að vinna fyrir kaupinu mínu.

Hér í Malmö er hið venjulega gráa veður og rigning, nú sé ég veðrið svo vel, þar sem að ég er búin að pússa gluggana.

Ég sit í rauða herberginu mínu, með kertaljós og Kim Larsen, er hægt að hafa það betra, en svona til að leiðrétta væntanlegan misskilning, þá hlusta ég á Kim Larsen, ég er ekki svo heppin að vera með hann lífs lifandi hjá mér.

Læt þetta gott heita.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið vildi ég vera þarna úti. Ég hef aldrei dvalið lengur en 6 vikur erlendis.

Þá gæti maður líka sleppt því að hafa áhyggjur af þessu rosalega ástandi sem er að koma upp hérna. Ennþá er svo sem allt í lagi, en þetta á víst eftir að versna mikið.

Ég var að væla mikið í konunni minni fyrir rúmlega ári síðan, að við ættum að selja húsið og flytja til útlanda, en barnanna vegna ákváðum við að hreyfa okkur hvergi.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 15:53

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég mundi líka vilja vera þarna og mundi ábyggilega koma og fá að smakka snúðana þína með honum Hans eða eitthvað annað gaman baraVar eins og Sveinn hinn Ungi að hugsa um að flytja til Svíþjóðar fyrir nokkrum árum, en það var tilhugsunin um aldraða foreldra mína sem stoppaði mig... enda eina barnið þeirra af 5 sem bý hér á Akureyri

Jónína Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 16:33

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Bara hugglegheit hjá minni,um að gera að njóta þess að vera til

Guðný Einarsdóttir, 18.11.2008 kl. 16:44

4 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Sveinn hinn ungi, það er víða slæmt ástand, hér er fólki sagt upp í hrönnum, en auðvitað er ástandið heima ótrúlegt. Ég hef búið utanlands meira en hálfa ævina, en langar oft til þess að fara heim aftur, en eins og að allt er heima þessa dagana, þá dregst víst að ég geri það.

Jónína mín, snúðarnir voru góðir á bragðið, og þú værir hjartanlega velkomin hvort sem að snúðar eða eitthvað annað væri á borðstólum. Þetta með að flytja á milli landa er bæði uppá gott og vont, sumum líkar vel, en afar margir fara aftur heim

Guðnú mín, já það er eins gott að hafa það bara huggulegt hér í Sviþjóðinni

Heiður Helgadóttir, 18.11.2008 kl. 21:08

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Oooo.. og ég sem var að vona að þú hefðir dottið í lukkupottinn og nælt í Kim Larsen!  Kannski næst....!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 21:09

6 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Nei Sigga mín, svo heppin er ég ekki, það hefði nú verið "næs" að hlusta á hann syngja í sturtunni á morgnanna, svo reykir hann prins sígarettur eins og ég, eða gerði, hvernig að ég veit það, hann var oft á ferðinni með okkur í minni gömlu vinnu

Heiður Helgadóttir, 18.11.2008 kl. 21:22

7 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Heyrðu, hann er bara eins og eftir "pöntun" handa þér!  Þú ættir kannski að skrifa honum eitt lítið sætt og krúttaralegt bréf í kærleiksríkum tón....ef hann er á lausu Cupid !





Sigríður Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 21:39

8 Smámynd: Heiður Helgadóttir

 Lava Lamp Ha,ha,ha, Sigga mín, er eiginlega örugg á því að kallinn er EKKI á lausu, hann var í sambúð með kellingu, gullfisk og nokkrum krökkum ekki langt frá Cristaniu, ef að ég man þetta rétt. Því miður, við hefðum orðið svo SÆTT par.





Heiður Helgadóttir, 19.11.2008 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 99394

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband