Kaka ársins vekur bernskuminningar

Mig dauðlangaði til að blogga um köku ársins, ég fékk nefnilega vatn í munninn þegar að ég sá mynd af þessari glæsilegu köku.

 Minnti mig svolítið á djöflatertuna sem að móðir mín bakaði í gamla daga, enginn gat bakað eins góða djöflatertu og hún, ekki veit ég hver uppskriftin var, eða hvað varð um hana, en enn þann dag í dag þá man ég eftir góða súkkulaðibragðinu (Síríus suðusúkkulaði), og að tertan bókstaflega bráðnaði í munninum á mér.

Þegar að ég var ung þá tíðkaðist ekki að borða bláber með súkkulaðitertum, en smá rjómaslettu gat maður fengið á hátíðadögum, og féll það oftast í minn verkjahring að þeyta rjómann með handþeytara. Ég sem að þjáðist af leti í mínum ungdóm, þótti óvenju ólöt við rjómaþeytinginn, það þurfti ekki að margspyrja mig hvort að ég nennti að þeyta rjómann, ástæðan var auðvitað sú að mér þótti rjómi óskaplega góður, og um leið og að ég þeytti rjómann þá stakk ég puttanum niður í rjómann og fékk mér vænar rjómasleikjur, hefði einhver komið að mér, þá hefði ég borið því við að ég væri að athuga hvort að rjóminn væri orðinn mátulega þykkur.

Mér þóttu smákökur óskaplega góðar þegar að ég var lítil, en þá voru alltaf til fínar smákökur fyrir gesti, og voru þær geymdar í dunkum í efstu hillunni í eldhúsinu. Ég þarf ekki að taka fram að þessar yndislegu kökur voru bara fyrir gesti, en ef að ég var heppin þá fékk ég að drekka með gestunum þegar að þeir komu, og passaði þá uppá að fá mér  margar kökur þangað til að móðir mín var farin að stoppa mig.

Auðvitað gleymdi ég ekki dunkunum með smákökunum góðu, og fór svo að taka uppá því að ná í stól og koll sem að ég klöngraðist uppá og tókst að ná upp í hilluna þar sem að kökurnar góðu voru geymdar, ég man að ég var afar varkár og tók bara eina af hverri sort, tókst svo að komast slysalaust niður. Þetta endurtók sig nokkrum sinnum, og var ég orðin hin liðugasta við prílið uppá stóla og palla, þangað til að einn góðan veðurdag þá gat ég ekki opnað kökudúnkinn, þá var búið að líma lokið á hann, og ekki nóg með það, þar var miði með eftirfarandi orðum "mundu að Guð sér þig þegar að þú stelur kökum".

Ég þarf varla að taka fram að ég varð óskaplega hrædd, ég þuldi örugglega fjálglega faðirvorið um leið og ég hreinlega datt niður, og eftir þetta fengu gestasmákökurnar að vera í friði fyrir mér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Ohhh .. þarna kom það.. minningar streyma úr æsku þegar maður var að stelast í kökudúnkana hennar mömmu sko! Hahaha ... sér í lagi kanelsnúðana hennar!

Ég var líka hrifinn af rjóma eins og þú - en fimm systkyn mín vildu ekki einu sinni smakka hann, undarlegt nokk - ég fékk alltaf nóg af rjómatertum á jólum og páskum - og í öllum afmælum og svoleiðis - á meðan hin þurftu að deila sín á milli öðru.

Gaman að þessum pælingum hjá þér - alltaf gaman að rifja upp góðar minningar úr æskunni ..

Tiger, 6.2.2009 kl. 00:33

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gaman að þessuErtu ennþá svona dugleg að klifra ?

Jónína Dúadóttir, 6.2.2009 kl. 07:02

3 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Tiger minn, flest öll börn hafa gert þetta, en ég man samt að mér fannst ég vera svolítil glæpakona þegar að ég var í kökuþjófnaðinum. Samt voru kökurnar óhemju góðar, það var ekkert sektarbragð af þeim. Eigðu góðan dag minn kæri Tiger, gaman að þú ert kominn aftur á bloggið.

Heiður Helgadóttir, 6.2.2009 kl. 11:23

4 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Jónína mín, með aldrinum verður maður stirður, hefði aldrei látið mér detta í hug að einu sinni reyna að príla svona í dag, það fer nú hrollur um mig við tilhugsunina. Eigðu góða helgi kæra Jónína

Heiður Helgadóttir, 6.2.2009 kl. 11:25

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Upp á gömlu Rafhaeldavélina kleif ég, og stóð upp til að ná upp í hornhilluna í eldhúsinu þar sem mútta geymdi piparkökurnar í stórri krukku.....afi fékk iðiulega slag þegar hann kom að 4-5 ára skvísunni í þessu brasi...en aldrei fékk ég bréf frá Almættinu um málið.

Sigríður Sigurðardóttir, 15.2.2009 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband