1.6.2009 | 09:14
Aumingja kellingin hún Susan Boyle
Aumingja kellingin, margir verða klikkaðir af minna álagi en því sem að hún hefur þurft að þola síðustu vikur.
Frá því að vera gráhærð kelling með óskaplega villimannslegar augnabrúnir, sem að bjó ein með kettinum sínum, verður hún allt í einu stjarna yfir eina nótt.
Og að vera með blaðamenn hokrandi í kring um sig, sem að sitja jafnvel fyrir henni þegar að hún skíst á klósettið, svona til að ná góðri mynd af henni þar, getur ekki verið skemmtilegt fyrir konu sem að aldrei hefur gert mikið vesen af sér.
Vonandi tekst henni að ná góðri heilsu aftur, ekki þarf hún að hafa áhyggjur af reikningum, þar sem að ég hef lesið um ótrúlegar upphæðir sem að hún fær á næstunni, og er henni það vel unnað.
Susan Boyle á sjúkrahús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:16 | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hlustaði á þessa konu og verð að segja að ég skil ekki hæpið í kringum hana. Hún er langt frá því að vera góð söngkona, þótt hún hafi mikla rödd. Hún flögrai inn og út í falsettum og hélt engan vegin þræði í neinum af þessuum lögum. Hún söng lög með áberandi hækkunum og þa fílar fólk. Svona eins og Norska eurovisionlagið, sem byrjar hreinlega í hækkun og bætir svo 2-3 við og er alveg að hrökkva að skaftinu undir lokin. Hér er það sjónvarpið, sem segir fólki að þetta sé flott þegar það er það raunar ekki.
Jón Steinar Ragnarsson, 1.6.2009 kl. 15:41
Jón, ég hef bara séð og heyrt fyrsta lagið sem að hún söng, fannst hún vera með afar fallega rödd, en auðvitað er ég enginn sérfræðingur.
Heiður Helgadóttir, 1.6.2009 kl. 18:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.