15.6.2009 | 20:23
Um hitt og þetta
Ég er orðin löt að blogga, en stundum er svo mikið að gera hjá mér, á mínu litla heimili, að ég hef engann tíma til að blogga. Auðvitað er þetta hálfgert plat(ég er bara að drepast úr leti þessa dagana).
Ég er búin að líta yfir helstu fréttir og blogg, og sé að í dag er verið að mótmæla einhverju heima í Reykjavíkinni.
Ég dáist að fólki sem að hefur dug og þrek til að mótmæla öllu því sem að er óréttlátt, ef að ég væri heima á Íslandi, þá myndi ég mótmæla öllu því sem að hægt væri að mótmæla.
Eins og að ég hef minnst á í blogginu hjá mér, þá er ég á fullu í að framleiða Beiska dropa(ég skaust frá núna og hristi upp í flöskunni)Kominn er fallegur litur á það sem að einu sinni var venjulegur litlaus vodki, grasmylsnan er eiginlega orðin að engu, lyktin er ekki góð, en ef að ég man rétt þá er óttaleg fíla af Beiskum dropum(þeim sem að eru keyptir í ríkinu), enda á að drekka þá, ekki nota þá sem ilmvatn eða rakspíra. Ég læt ykkur vita hvað fólkinu finnst um þessa "dropa" mína, vona bara að enginn fái bullandi niðurgang af dropunum mínum.
Í dag fékk ég pakka frá Íslandi, systir mín og dóttir hennar sendu mér hina frægu "Dagvaktina" og úrval af Íslenskum lögum, ásamt mynd af litlum og fallegum strák, sem að systurdóttirin á, hann heitir Aron Máni, svolítið sérstök þessi nýju íslensku nöfn. Er virkilega hætt að skíra börnin heima Guðrúnu,Jón,Sigurð, og Sigríði öll þessi gömlu heiðarlegu nöfn, sem að var svo létt að muna.
Nú slæ ég botninn í þetta, óska öllum góðrar nætur.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:40 | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alltaf gaman að "heyra" frá þér mín kæraAron Máni er sko ekki skrítnasta nafnið... núna má til dæmis láta litla stráka heita Tuddi og Uxi og ýmis önnur fáránleg nöfn eru leyfð sem ég mundi aldrei nokkurtímann klína á lítið barn
Hafðu það gott í brugghúsinu
Jónína Dúadóttir, 16.6.2009 kl. 06:17
Þakka þér fyrir það kæra Jónína, ég er nú bara yfir mig hissa á að þessi nöfn skuli ver leifð, og efast um andlegt heilbrigði foreldra sem að skýra börnin sín þessum ónefnum eigðu góðan dag ljúfan
Heiður Helgadóttir, 16.6.2009 kl. 08:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.