Grár dagur í Malmö

Í dag verður grár dagur hérna í Malmö, mér leiðast gráir dagar, ég vil hafa sól alla daga.

Kannski er það vegna þess að ég geri þessi leiðinda húsverk eins og að þurrka rykið hjá mér(sem að virðist vera endalaust) á gráum dögum. Ég er örugg á því að í fyrra lífi var ég rík, og ég var með vinnukonu. Það er skýringin á því hversvegna mér leiðast húsverk, ég hef ekki þurft að gera þau í fyrri lífum.

En í dag ætla ég að þvo(þessir endalausu þvottar), ég á eftir að draslast með þvottinn niður í kjallarann, hrella kóngulærnar, sem að eru búsettar þar, og eftir stærðinni að dæma, þá líða þær engan skort.

Svo verða hlaup upp og niður stigana, hér er enginn lyfta. Og á milli véla ætla ég að þurrka burtu allt ryk sem að er þegar farið að gera svartar bókahillurnar gráleitar. En svo veit ég að mér líður svo ljómandi vel þegar að ég er búin að þessu, og gleymi því í fögnuði mínum yfir ryklausu heimili, og nýþvegnum fötum, að í næstu viku verður dagurinn í dag endurtekinn.

Í blogginu mínu í gær minntist ég á þessi frumlegu nýju Íslensku nöfn, og ein bloggvinkona gerði athugasemd og sagði mér að nöfn eins og Tuddi og Uxi væru leifð. Ég get ekki skilið manneskjur sem að vilja láta börnin sín heita Tuddi, þá er Uxi skárra, eru þá stelpurnar skýrðar Kvíga, eða jafnvel Læða, Kvíga Tuddadóttir passar vel saman, í fjósinu.

Læt þetta gott heita, en vonast samt til þess að einhver fáist til þess að skýra börnin sín venjulegum nöfnum, svo að þau gleymist ekki.

Óska öllum góðs og gleðilegs dags.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Smá sumarkvedja til tín svona í tiltektina.

Hér vantar líka sól hún lætur sjá sig tó annad slagid.

Kvedja frá Hyggestuen í Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 16.6.2009 kl. 09:45

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Kvíga TuddadóttirAlveg satt passar vel í fjósinu

Gangi þér vel og góða skemmtun í húsverkum

Jónína Dúadóttir, 16.6.2009 kl. 11:38

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

já eða Uxi Tuddason hehehe, máður er farin að þakka fyrir þetta gamla góða "Guðrúnar"nafn :)

Guðrún Jóhannesdóttir, 17.6.2009 kl. 12:43

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Hehehe...eitthvað yrði maður ílla súr að heita Kvíga Tuddadóttir, vinkona...nei þá eru gömlu góðu frónversku nöfnin betri.  Hér er sól og bongóblíða...og enda engin tiltekt í gangi hjá mér.  Vonandi fer að birta til hjá þér....

Sigríður Sigurðardóttir, 19.6.2009 kl. 20:58

5 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Innlitskvitt..knús á þig

Guðný Einarsdóttir, 23.6.2009 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband