Ég hef ekki bloggað vikum saman, og verið löt við að lesa blogg hjá mínum kæru bloggvinum, hef eiginlega ekki lesið Moggann undanfarnar vikur, nema þá helstu fréttir og fasteigna auglýsingarnar.
Nú er haustið komið til okkar hérna á Skáni, mikið rok er hjá okkur, og þegar að ég var úti í gönguferð í dag, þá þakkaði ég mínum sæla fyrir að vera ekki lauflétt, annars hefði ég tekist á loft upp, og fokið eitthvað út í buskann. Svo að það er nú gott að vera soldið búttuð öðru hvoru, nema þegar að manni dettur í hug að máta föt.
Mér varð á að þvælast inn í Mollið, varð að hvíla mína lúnu fætur, og þá er tilvalið að labba um í rólegheitum í fatabúðunum, og svo er hægt að setjast niður öðru hvoru, yfirleitt eru stólar fyrir utan prófklefana, og þar sat ég dauðpirruð á sjálfri mér og yfirviktinni, því að ég líktist mest litlum fíl í öllu sem að ég mátaði, og ekki nóg með það, ég tók eftir því að ég var grænleit í framan í sumum speglunum, og er ég að velta fyrir mér hvort að ég eigi að hafa samband við búðareigendur, og benda þeim á hvað það sé áríðandi að vera með góða spegla, helst svona sem að fegra viðskiptavinina, og jafnvel geri þá grennri en þeir eru. Ég er örugg á því að salan myndi aukast.
Nú læt ég þetta gott heita, óska öllum góðs kvölds.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Bækur, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:14 | Facebook
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hverra manna skyldi konan vera? Sérdeilis forvitinn ef hún er af Rangæskum ættum.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.9.2009 kl. 17:38
Bergsætt í föðurætt, móðurættin frá Langanesi. Góð blanda held ég.
Heiður Helgadóttir, 4.9.2009 kl. 18:04
Það ert ekki þú ljúfan mín, það eru fötin Gaman að þú skulir skrifa hérna
Jónína Dúadóttir, 5.9.2009 kl. 19:23
Grænu speglarnir eru einnig til hér. Minnir illilega á sjóveiki, og jafnvel "litla græna menn frá Mars", þá mátað er fyrir framan slíka grænspegla. Botna þetta ekki vinkona. En góðar stundir og vonandi fer veður að skána á þínum slóðum.
Sigríður Sigurðardóttir, 13.9.2009 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.