29.1.2009 | 16:33
Fimmtudagur úti á sjó
Þá er kominn fimmtudagur, en það er dagur baunasúpunnar, og á eftir súpunni fáum við nýbakaðar pönnukökur með sultu og rjóma. Ég þarf svosem ekki að taka það fram að flestir tóku vel til matar síns, og sú sem að skrifar þessar línur var enginn eftirbátur hinna.
Gleymd voru hlaup á brettum, ég gleymdi líka áhyggjum af einhverjum bannsettum keppum sem að voru að trufla mig um daginn. Ég hugga mig við að á veturna er ósköp eðlilegt að bæta á sig, eiginlega á fólk að vera soldið þybbið á veturna, það er gott að vera með smá varaforða á sér, svona í kuldanum.
Svo held ég að karlmönnum finnist nú alltaf mikið skemmtilegra að hafa eitthvað almennilegt að taka utan um, enginn maður vill vera með einhverja horrenglu og eiga á hættu að slasa sig á beinunum.
Ein bloggvinkona mín er komin út úr skápnum, hún er allt í einu orðin hann, og ekki nóg með það, hann er þessi frábæri penni, og bind ég vonir mínar við að eiga eftir að lesa marga rómana eftir hann.
Við erum að leggja af stað til Þýskalands, og slæ ég botninn í þetta. reyni að kíkja á bloggvini mína á morgun.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2009 | 19:28
Er bara að láta vita af mér
Ætla að láta vita af mér, er ekki hætt að blogga, en tölvan mín vill ekki þýðast mig þessa dagana, vonandi verður hún komin í betra skap í næstu viku.
Ég er komin í vinnuna, framundan er heil vika á sjónum. Ég hef því miður ekki getað lesið bloggið hjá ykkur mínir kæru bloggvinir, en hef fengið kveðju frá "Alkanum" um að hann haldi ekki áfram að blogga, eins er "Tigerkopper" hættur hérna, mér til mikillar sorgar, það var alltaf öruggt að ég komst í gott skap þegar að ég las bloggið hans "Tigerkopper", og bloggið hjá "Alkanum´" átti erindi til allra, því að öll þekkjum við einhvern sem að hefur þurft að berjast við Bakkus, það getur verið faðir, bróðir, systir, eða hreinlega börnin okkar. Um leið skil ég "Alkann" að hann vilji og geti ekki bloggað undir fullu nafni, sem að virðist vera svo áríðandi hérna á Moggablogginu, hlutur sem að mér finnst ekki að skipti máli, svo framarlega sem að fólk er ekki með skít og illyrði út í hvort annað.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2009 | 14:28
Er fólki farið að lengja eftir 1 apríl
Ég á nú erfitt með að trúa að dæmdir barnaníðingar séu farnir að tilkynna komu sína, trúlegra er að þeir reyni að fara meira og minna huldu höfði á nýjum stöðum.
Er fólki farið að lengja eftir 1 apríl, eða voru þetta unglingar að skemmta sér við að koma óhug og hræðslu af stað í Sandgerði.
Kynnti sig sem dæmdan barnaníðing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.1.2009 | 21:42
Auðvitað hefur kreppa slæm áhrif á heilsu fólks
Kreppan gæti haft slæm áhrif á heilsuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.1.2009 | 20:29
Elisabeth sem að er 99 ára og ástfangin...........
Og þá er komið mánudagskvöld, einn dagur eftir, eða ein blússa eftir, svo fer ég heim. Eins og venjulega er lítið að gera hjá okkur, en við erum farin að venjast þessu letilífi, og erum hætt að kvíða yfir aðgerðarleysinu.
Ég kasta mér yfir blöðin um leið og þau koma um borð til okkar, það sem að vakti athygli mína í dag var grein um hana Elisabeth sem að er 99 ára og er ástfangin í honum Pella sem að er bara 69 ára (að tala um lambakjöt), Elisabeth kynntist Pella fyrir tveimur árum, hún hafði verið í bæjarferð og tók strætó heim, þegar að hún steig af strætó á stoppistöðinni heima hjá sér, þá hittir hún nágrannakonu sína sem að var að tala við ákaflega viðkunnanlegan mann, þau voru kynnt fyrir hvort öðru, og nokkrum dögum seinna var kerla búin að fá símanúmerið hjá honum í gegn um nágrannakonuna, hún hringdi og bauð honum heim, sagðist hafa sagt við hann, "komdu og sjáðu hvað ég bý vel", Pelle kom eins og skot og var boðið uppá þurran vermont, Pelle drakk þurra vermontinn með góðri list, og bauð Elisabeth að koma heim til sín og fá sér vænan sjúss með honum. Eftir það uppgötuðu þau hvað þau pössuðu vel saman, og Elisbeth segist vera jafn ástfangin í dag og hún gat orðið á sínum yngri árum.
Þetta er góð og sönn saga sem gleður mann svona mitt í öllu krepputali
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2009 | 23:58
Og í hverju verður Frú Obama á þriðjudaginn????????????????????
Þá er komið sunnudagskvöld, dagurinn hefur farið í lestur dagblaða og tímarita, ekki hafa farþegarnir truflað okkur, afar fámennt en um leið góðmennt.
Ég las um hana Frú Obama sem að verður fyrsta svarta forsetafrúin í sögunni, kannski ekki sú síðasta. Hún veit greinilega hvar skápurinn á að standa, og virðist hafa forsetann í hendi sér, ekki veitir nú af að reyna að hafa stjórn á þessum forsetum, sem að auðvitað vaða í viljugum konum um leið og að þeir eru komnir í Hvíta húsið. Sagt er í blaðinu að það sé nú eins gott að hann Obama sé ekkert að leika sér með vindla og konur í ávala herberginu, þar sem að konan hans myndi lemja hann í klessu og síðan fara frá honum ef að hún kæmist að því að hann væri í mömmuleik með öðrum konum.
Mér líst vel á þessa dömu, hana Frú Obama, og auðvitað er ég yfir mig spennt að sjá í hverju hún verður á þriðjudaginn, varla verður hún í einhverri gamalli druslu, verður hún í Kennedy kjól og með perlufesti, eða í flottri dragt, skildi Obama gefa henni flottan pels í tilefni dagsins.
Ég fæ svör við þessu öllu saman á þriðjudaginn, get varla beðið.
Stjörnuspáin mín er góð, mér er bent á að taka lífinu með ró, og það er ég svo sannarlega búin að gera, mér er bent á að tala mikið, og svei mér þá ef að ég er ekki búin að vera með hálfgerða munnræpu síðustu daga.
Hvað er svo fólk að halda því fram að það sé ekkert að marka stjörnuspár.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2009 | 21:53
Laugardagskvöld á sjónum
Lítið skeður hjá okkur sjófólkinu, við förum þetta fram og til baka, vitum stundum ekki hvar við erum, hvort að við séum á leiðinni til Þýskalands eða Svíþjóðar.
Lítið er að gera hjá okkur, ekki margir sem að fara í verslunarferðir til Þýskalands lengur, en Pólverjarnir halda tryggð við okkur, og þá á ég við þá sem að vinna í Noregi.
Þar sem að svona lítið er að gera hjá okkur þá höfum við alltof mikinn tíma til að spjalla um kreppuna og atvinnuleysið, öll erum við hrædd við uppsagnir, og margt af lausráðna fólkinu situr heima atvinnulaust, og lítil von til að það breytist næstu vikur.
Ég vil ekki mála fjandann á vegginn, en hræðslan hefur smitað okkur öll eins og versta farsótt.
Öldruð kona sem að ferðaðist með okkur í vikunni hneig hálf líflaus niður, hún var reyndar búin að kvarta yfir lasleika rétt áður en að hún féll niður, en sem betur fór tókst að fá líf í hana, og um leið var verið í beinu sambandi við lækna í landi, og sjúkrabíllinn stóð tilbúinn til að bruna með hana til Lundar þegar að við komum í land í Svíþjóð. Og eftir því sem að okkur var sagt þá átti hún eftir að ná fullri heilsu.
Annars er ósköp tíðindalaust hjá okkur sjófólkinu, úti er kalt er mér sagt, en enginn snjór hefur komið að mér vitandi hér á Skáni.
Óska öllum góðrar og ánægjulegar helgi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2009 | 23:39
Það er langt síðan að ég bloggaði....................................
Það er langt síðan að ég hef bloggað, ástæðan er ekki áhugaleysi, heldur tók tölvan mín uppá því að fá alvarlegan sjúkdóm, það alvarlegan að ég þurfti að leita aðstoðar hjá tölvulækni, og er blessuð tölvan búin að vera í alls kyns rannsóknum hjá tölvulækninum, í morgun sagðist hann vera búinn að lækna tölvuna af öllum kvillum og vírusum, og er tölvan væntanleg heim eftir viku.
Ég sjálf er í vinnunni, lítið sem ekkert er að gera hjá okkur, og nota ég tækifærið að blogga, og læt sem að ég sjái ekki augnagotur frá yfirmanninum.
Gestirnir okkar eru flestir orðnir reikulir í spori, eftir mikla og ákafa drykkju af Finlandia Vodka blandað með Red Bull, þannig að ég lít oft á klukkuna, vil helst geta lokað áður en að þeir sofna hérna í búðinni, eða fá vængi af Red Bullinu.
Ég læt þetta gott heita, óska öllum góðs fimmtudags.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.1.2009 | 17:07
Og hvað skildu þeir vera þungir???????????????????????????
Gaman væri að fá að vita hvað þeir eru þungir, eiginlega hefur mér alltaf þótt svolítið óréttlátt að afar feitt fólk þurfi ekki að borga aðeins meira fyrir flugmiðana sína en mjóa fólkið.
Kem ég með ferðatösku sem að vegur meira en tuttugu kíló, þá er ég miskunnarlaust látin borga fyrir yfirvigt.
Of þungir fyrir háloftin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
6.1.2009 | 10:32
Komin heim
Ég skrifa þetta í vinnunni, kom heim með eina tösku, pakkaði í aðra tösku, og fór eiginlega beint í vinnuna.
Átti samt eitt kvöld heima, og þá las ég öll jólakortin mín, og sá mér til mikillar gleði, að ég hafði ekki gleymt neinum, þegar að ég skrifaði mín, aftur á móti höfðu nokkrir gleymt mér, þessi blessaða fjölskylda mín heldur að ég vilji ekki fá jólakort þegar að ég er ekki heima yfir jólin, nema að þau séu farin að spara, það er jú kreppa.
Hér í vinnunni hjá mér erum við farin að sjá mikinn samdrátt, við höfum alltaf haft einhver ósköp af vörubílum með okkur, þessa dagana höfum við afar fáa, útlitið er ekki gott, verið er að breyta ferðum okkar, við eigum að liggja nokkra tíma á nóttunni, þetta hefur ekki skeð í manna minnum, og því miður erum við farin að óttast uppsagnir.
En hvað um það, í gær kom snjór, ekki það mikill að jörðin yrði hvít, en það er kalt, það er vetur í Svíaríki.
Ég kvaddi Spán og tengdadóttur mína með sorg í hjarta, hún og vinkona hennar drifu mig út á dansstað síðasta kvöldið, mér var komið á óvart með þessu, sat bara heima í gallabuxum og strigaskóm, búin að pakka betri fötunum niður í tösku, þá komu þær vinkonurnar og heimtuðu að fara út með kellinguna, og kellingin fór bara út eins og hún stóð, og áttum við skemmtilegt kvöld saman, mikið hlegið og mikið dansað, og það er enginn vandi að dansa í strigaskóm, svona ef að þið hélduð það.
Ég óska öllum góðs og skemmtilegs dags, hér í vinnunni finnum við lítið fyrir því að það sé öðruvísi dagur, en á morgun förum við heim.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar