Færsluflokkur: Bækur
17.5.2009 | 09:10
Langt síðan að ég bloggaði
Það er svo langt síðan að ég bloggaði, að ég veit varla á hverju ég á að byrja. En ástæðan fyrir bloggleti minni er einfaldlega sú, að ég er búin að vera á kafi í námskeiðum og alls kyns fundum í sambandi við vinnuna, og er gjörsamlega galtóm þegar að ég kem heim.
En ég horfði á söngvakeppnina í gær, sá flesta, og rétt lag vann, og auðvitað var Island meiri háttar, unga stúlkan í öskubuskukjólnum var frábær, og kom mér mest á óvart að hún fékk ekki fleiri stig.
Sænska daman er auðvitað mjög góð, en átti eiginlega ekki heima þarna, enda átti ég aldrei von á að hún kæmist langt.
Í dag skín sólin hjá okkur hérna í Malmöborg, í gær var grátt veður og rigning, svona veður sem að afsakaði að ég undirrituð lá mest fyrir í sófanum, og horfði á, bæði matarprógrömm og spennumyndir, verð samt að viðurkenna að ég sofnaði í miðjum myndum, ég veit ekki hver það var sem að myrti gömlu konuna í einni myndinni, en get best trúað því að það hafi verið tengdasonurinn.
Ég læt þetta gott heita, en óska öllum góðs dags
Bækur | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2009 | 22:14
Komin heim
Jæja þá er víst búið að kjósa heima á Íslandi. Vonandi kusu nú allir rétt, og vonandi verður nú staðið við öll kosningaloforðin. Ég hef ekki getað fylgst með þessum ósköpum, og veit ekki hverjir unnu, en er fegnust því að hafa sloppið við að þurfa að kjósa, og um leið að hlusta á öll loforðin sem að eru gefin fyrir kosningar, en sem að gleymast oftast jafn fljótt, eftir að þeir sem að lofa mestu, hafa komist til valda.
Hér á Skáni er sumarveður, yfir tuttugu stiga hiti, léttklætt fólk úti á götum borgarinnar, sumir éta ís, aðrir drekka gos, og enn fleiri sitja með ískaldan bjór. Þetta veður á að haldast fram yfir helgi, en þá er spáð rigningu. Þannig að ég ætla mér að liggja í leti og sleikja sólina næstu daga, ég læt gluggaþvott eiga sig næstu daga.
Óska öllum góðrar nætur.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.4.2009 | 08:11
Miðvikudagur til mikillar mæðu, eða ?
Þá er komið að síðasta blogginu, nei, nei, ég er ekki hætt, bara komin í viku pásu. Þarf víst að fara að vinna fyrir kaupinu mínu, og vera þakklát fyrir að vera með vinnu.
Og enn skín sólin á okkur hérna á Skáni, eiginlega hefði ég viljað að það væri rigning, það er mikið skemmtilegra að fara í vinnuna í rigningu.
Í gær þvoði ég eldhúsgluggann hjá mér, eftir mikið puð við gluggaþvott þá skín sá gluggi í kapp við sólina, það eina neikvæða við þennan dugnað minn, er sá, að ég verð greinilega að þvo og pússa hina gluggana í næsta fríi, þar sem að ég sé ekki almennilega til veðurs nema í eldhúsinu.
Skattaskýrslan bíður mín í næsta fríi, af einhverjum undarlegum ástæðum, þá leiðist mér að gera skattaskýrslu, eiginlega er mér illa við orðið skattur, mér sárnar að borga marga þúsundkalla í hverjum mánuði í skatta, ég hefði getað gert svo mikið annað fyrir peningana. Ég hefði lifað góðu og áhyggjulausu lífi á skattapeningunum mínum.
Og ég er þreytt á að sjá allt liðið á götum bæjarins sem að aldrei hafa unnið og borgað skatta, en lifa um leið sæmilegu lífi á mínum sköttum. Sumt af þessu fólki hefur aldrei ætlað sér að vinna í sínu nýja landi, það fer bara til félagsmálastofnunarinnar í hverjum mánuði og nær í aurana sem að þeim er úthlutað, en þyrfti ég að leita þangað, þá væri mér sparkað út á mínútunni, þar sem að ég asninn hef alltaf unnið.
Nú er ég komin út fyrir það sem að ég ætlaði mér, þetta er allt saman skattaskýrslunni að kenna.
Óska öllum góðs dags, nú fer einkabílstjórinn minn að koma.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.4.2009 | 18:35
Frábær kall, hann Helgi í Góu
Ég vilda að fleiri en Helgi í Góu hefðu þennan brennandi áhuga fyrir því, að búa vel að gamla fólkinu, og er þetta ekki frábær hugmynd með lífeyrissjóðina.
![]() |
Hugsjónamaðurinn Helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.4.2009 | 12:36
Heyr fyrir Torfusamtökunum
Mikið er ég nú sammála Torfusamtökunum. Aðfarirnar hjá lögreglunni á Vatnsstíg voru ömurlegar. Og auðvitað eigum við íslendingar að varðveita þessi gömlu hús, í stað þess að láta þau grotna niður, í þeim tilgangi að síðan rífa þau, og byggja steinkumbalda sem að hvergi eiga heima nema í úthverfum bæjarins.
Mikið fannst mér gaman að ganga um miðbæinn gamla og sjá gömlu húsin okkar, sumum var vel við haldið, öðrum minna við haldið, og ættu eigendur þessara húsa að fá styrki til að geta staðið undir viðhaldi og málningu á gömlu húsunum okkar.
Þessi hús er partur af sögu Reykjavíkurborgar, við höfum ekki alltaf búið í átta hæða blokkum, með lyftu, eða fjögur hundruð fermetra steinhúsum.
![]() |
Torfusamtökin gagnrýna hörku lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
20.4.2009 | 08:33
Um daginn og veginn
Og enn skín sólin á okkur hérna í Malmöborg, mikið verður nú skapið léttara þegar að veðrið er gott, og engin vandamál eru svo slæm að ekki sé hægt að leysa þau.
En væri ég búsett á Íslandinu mínu, þá væri ég í miklum vandræðum, og nú á ég við væntanlegar kosningar. Ég er fegin að losna við þá ábyrgð að þurfa að velja út einn flokk, og kjósa þann flokk, og komast svo að því eftir kosningar, að öll loforðin og faguryrðin voru eintómt bull.
En ég vona að sá flokkurinn komist að, sem að getur haft áhrif á dýrtíð og atvinnuleysi.
Mikið er smyglað af eiturlyfjum, miðað við það mikla magn sem að er tekið flestalla daga vikunnar, væri hægt að halda, að meira en helmingur þjóðarinnar sé farin að styrkja sig á dópi, eða farnir að reykja gras, kannski veitir fólki ekki af því, í því ástandi og öryggisleysi sem að ríkir í landinu, en verst er nú að vita til þess að höfuðpaurarnir nást sjaldan, þeir geta setið á sínum breiðu afturendum, og lifað flott á kostnað annarra, þar er ekkert atvinnuleysi.
Nú er sólin farin að lokka mig út til sín, ég held að ég skelli mér út í sólbað með bókina sem að ég er að lesa, en það er frábær bók eftir frábæran rithöfund Margaret Yorke.
Bækur | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.4.2009 | 21:26
Súpan................
Ekki var áhuginn mikill fyrir súpunni, fyrst að það töldust vera hundrað manns sem að mættu í veisluna. Þá er betur mætt í margar fermingarveislur, samt þurfa gestir í fermingarveislum að borga með sér, er ekki talið að inngangurinn í fermingarveislu sé að meðaltali fimm þúsund krónur.
![]() |
Kosningakjötsúpa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2009 | 11:13
Dónamyndir og dónablöð
Svolítið merkileg aðferð sem að konan notaði til að hefna sín á nágrannakonunni.
Ég hef aldrei fengið dónablöð send í pósti, en aftur á móti fengið ótal tilboð um að gerast áskrifandi af dónalegum myndum, send til mín í tölvupósti, nýjar myndir á hverjum degi er lofað, ekki veit ég hvað það kostar, þar sem að ég hef takmarkaðan áhuga. Um leið á ég erfitt með að skilja hvernig dónamynda framleiðendur hafa fengið augastað á mér, einhleypri kellingunni í Svíþjóð, það skildi þó ekki vera að nágrannar mínir standi á bak við þetta, vilja þeir losna við mig úr húsinu, eða tek ég of mikið pláss í garðinum okkar, eða halda þau að þetta sé mitt aðal áhugamál að skoða dónamyndir, kannski er góð hugsun á bak við þetta.
![]() |
Í fangelsi vegna klámtímarita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2009 | 23:39
Á laugardagskvöldi er þetta skrifað
Ég ligg í leti þessa dagana, sólin skín svo skemmtilega á okkur hérna í Malmö, og eiginlega er ekki hægt að ætlast til þess að maður sé að gera leiðinda heimilisverk, þannig að ég þykist ekki sjá skítuga glugga, eða rykið í hryllunum, enda sést það ekki svo mikið þegar að ég er búin að setja upp sólgleraugun. Hefur engum dottið í hug að framleiða "vinnukonur" fyrir heimilisglugga, væri það ekki frábær uppfinning, ætti ég að sækja um leyfi fyrir þessari hugdettu minni.
Um leið og ég sleikti sólina í dag og horfi á Gunnel strá mosaeyðingarefni á grasið(nei, hún vill ekki fá neina aðstoð) þá las ég bókina hans Arnalds "Myrká", sem að mér tókst að hrifsa til mín á hlaupum í bókabúðinni á Keflavíkurvellinum(auðvitað borgaði ég bókina). Þetta er besta bókin hans finnst mér, og ástæðan er einfaldlega sú að hún Elínborg er aðalsöguhetjan, og ætti hún að vera það í næstu bókum hans, af einhverjum ástæðum þá tókst Arnaldi að skapa afar skemmtilega og góða mynd af henni og fjölskyldu hennar, mikið persónulegri mynd en af löggukallinum sem á dóttur sem að er í sífelldum vandræðum.
Það er að verða áliðið hérna í Svíþjóðinni, en núna er tveggja tíma mismunur á klukkunni hjá okkur, og heima á Íslandinu góða, þannig að ég ætla að fara að leggja mig, og vona að hann Óli Lokbrá vilji koma til mín.
Óska öllum góðrar nætur.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2009 | 23:06
Enn ein kannabisræktunin
![]() |
Lokuðu kannabisverksmiðju á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar