Færsluflokkur: Dægurmál
7.12.2009 | 23:07
Hef ekki bloggað í lengri tíma...........................
Ég er búin að vera afar upptekin kona síðustu vikur, hef ekki haft tíma fyrir blogg né fésabók.
Kannski hélduð þið að, nú væri sú gamla komin á kallafar, og gæti engu öðru sinnt, en ég verð að gera ykkur soldið vonsvikin, enginn maður hefur komist inn á mitt piparkonu heimili nema hann mágur minn og þá í fylgd með systur minni.
En ég er búin að vera á kafi í tölvunni minni, og er að leita að fallegum skartgripum, sem að ég sel á netinu, og er ég farin að selja smávegis, og er nokkuð bjartsýn á framhald af því.
En að leita að réttum söluaðilum er sko ekkert grín, og fer óskaplegur tími í það.
Hér í Malmö er allt á kafi í jóla undirbúningi, eins og í öllum öðrum löndum, mikið fólk í búðunum, og finnst mér margir vera hálf pirraðir á svipinn, enda ekkert grín að leita að réttum jólagjöfum, á réttu verði.
Ég ætla að halda uppá jólin í Malmö, hef ekki verið heima á jólunum í fleiri ár, og eiginlega kominn tími til þess að vera bara heima í rólegheitum.
Auðvitað er ég búin að draga fram alls kyns jólaskraut, og er búin að vera steinhissa á því hvað ég á marga jólasveina, og núna eru jólasveinarnir út um allt hjá mér, ósköp sætir kallagreyin, og ekki eru þeir að trufla mig, en það hefði lifandi jólasveinn gert.
Á morgun fer ég í svínainflúensusprautu, og verð nú að viðurkenna að mér kvíðir fyrir, ég er nefnilega lítið fyrir sprautur, og búið er að fylla mig af alls kyns hryllings frásögnum um hvað geti skeð eftir sprautuna, eiginlega er talið hættulegra að sprauta sig, en að fá flensuna.
Þetta kemur allt í ljós á morgun, og ef að mér tekst að lifa af sprautuna, þá læt ég ykkur vita.
Læt þetta gott heita, óska öllum góðs kvölds.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2009 | 14:30
Bara um Svínapestina og ýmislegt annað
Það skeður lítið hérna í Malmö,annað en þetta venjulega, bófar skjóta hvorn annan, nokkrar kerlingar eru rændar, en þeim er nær að vera að þvælast úti, og að vera með veski á handleggnum til þess ögra ræningjum, í stað þess að vera öruggar heima, á bak við læsta hurð.
Það er farið að kólna, og er eins gott að vera vel klædd og með húfu og trefill. Nú er því spáð að Svínapestin eigi eftir að aukast, og horfi ég tortryggins augum á allt hóstandi og kvefað fólk.
Eiginlega ættu allir að vera með gasgrímu fyrir andlitinu, og forðast öll mannamót.
Eiginlega ættu allir að vera heima í einangrun á fullu kaupi þangað til í mars mánuði, en því er haldið fram að Svínapestin þrífist best í köldu lofti.
Ég sjókonan er í mikilli hættu, þar sem að ég er innan um svo margt fólk, og verð að viðurkenna að ég er farin að vera meira og minna með hanska, og ef að ég tek hanskana af mér, þá þvæ ég hendurnar með sérstökum sótthreinsandi vökva.
Ég er nefnilega ekki búin að gera upp við mig hvort að ég vilji láta sprauta mig mót flensunni, er meinilla við sprautur, og það eru skiptar skoðanir um ágæti bóluefnisins.
Í kvöld skrepp ég á mætingu hjá gömlum vinnufélögum, en við eigum það sameiginlegt að missa vinnuna fyrir 10 árum síðan, en það var þegar að brúin á milli Danmerkur og Svíþjóðar varð til.
Eins og að við hötuðum þessa bansettu brú þegar að hún varð til, en í dag kæmust við ekki af án hennar, enda er brúnni sjaldan lokað sökum veðurs, en stundum gátum við á ferjunum ekki haldið áætlun, sökum veður ofsa eða íss á sjónum.
Nú læt ég þetta gott heita, óska öllum góðs dags.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2009 | 22:35
Bara um hitt og þetta
Ég er orðin svo löt við bloggið, eiginlega vegna þess að mér finnst ég hafa svo lítið að skrifa um.
Auðvitað vona ég að einhverjir sakni mín, þó svo að ég hafi aldrei komist ofar en að vera ein af fimmtíu mest lesnu bloggurum, svona einstaka sinnum.
Hér í Malmö er farið að kólna, og er okkur hótað snjóblandaðri rigningu í nótt.
Flestir eru komnir í vetrarföt, áberandi eru svartir og gráir jakkar, væri hægt að halda að fólk væri hrætt við aðra liti. Og auðvitað eru flestir komnir með trefla og húfur, oftast í gráum og svörtum lit.
Ég undirrituð skrapp í bæinn í gær, og heimsótti hinar og þessar skransölur, en það er með því skemmtilegasta sem að ég geri, því meira drasl, þess betra.
Auðvitað geri ég góð kaup öðru hvoru, í þessum leiðöngrum mínum, í gær fann ég þennan flotta svarta fjörutíu tals kjól(eins og móðir mín var í þegar að hún var ung). Ég saup hveljur þegar að ég fann hann, og svo þegar að hann passaði svona ljómandi vel(auðvitað mátaði ég hann, mitt í öllu draslinu) þá hélt ég varla vatni. Út fór ég með þennan fagra kjól, og verður hann notaður um næstu helgi, en þá fer ég á smáskemmtun, sem að er kölluð "hrukkur og hundrað pör af skóm".
Ég fer með vinnufélaga mínum, konu á besta aldri. Við konurnar á besta aldri vildum fá Daniel vin minn með okkur, en hann snéri bara upp á sig, og sagðist ekki vera kominn með hrukkur eins og sumir. Ég benti honum á að það væri nú farið að halla undir fæti hjá sumum(hann er jú kominn yfir þrítugt, þessi elska), og svo veit ég fyrir víst að hann á minnst fimmtíu pör af skóm.
Ég hef verið að dunda mér við að færa til húsgögnin heima hjá mér, og er með stóra hillu sem að ég ætlaði að setja niður í geymslu. Ég fékk fuglaskoðunarmanninn til þess að hjálpa mér, og vorum við komin hálfa leiðina niður í stigann hjá mér, þá komust við hvorki upp né niður. Við festumst með hilluna, Kristján fuglamaður var orðinn eldrauður í framan og hrópaði til mín, "hvernig tókst þér að koma hillunni upp", ég sagði eins og að satt var, að það voru flutningakallar sem að sáu um það.
Þarna stóðum við nokkuð lengi, og komumst hvorki upp né niður, en þá kom Hans á fyrstu hæðinni, hann hafði heyrt í okkur, og kom hann með góð ráð, og hrópaði hvatningarorð til okkar þegar að við vorum að gefast upp, og á endanum komumst við upp með hilluna aftur, og stendur hún úti á gangi, og verð ég víst að sætta mig við að hafa hana þar.
Læt þetta gott heita.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2009 | 21:52
Athyglisvert er að........................................
Athyglisvert er að þrír þekktir erlendir afbrotamenn biðu eftir konunni á Keflavíkur flugstöðinni.
Merkilegt er að á sama tíma sem að Íslendingar flýja land sökum erfiðs ástands, þá er erlenda glæpaliðið eftir, og virðist una hag sínum vel í kreppunni.
Um leið er ég að velta fyrir mér, af hverju þurfti konan að koma undir fölsku nafni, er ekki eitthvað bogið við það.
Þetta er undarlegt mál, og verst er að það virðist vera, sem að alls kyns óvelkomið lið sækir í að komast til Íslands, og væri fróðlegt að vita ástæðuna fyrir því.
Ekki vitað hvar konan er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2009 | 15:08
Bara um hitt og þetta
Ég ætla bara að rabba um hitt og þetta, er ekkert að blanda mér í stjórnmálin heima, hef ekkert vit á þeim málum.
Verð samt að viðurkenna að ég varð steinhissa þegar að ég las að hann Davíð væri kominn til Moggans, og ónefnd kona hringdi í mig og sagðist ætla að seigja upp áskrift sinni hjá Morgunblaðinu, og nú væri Fréttablaðið komið með jafn mikið af minningargreinum, og þá engin ástæða til að halda tryggð við Moggann og Davíð.
Mér varð á að rölta út í Mollið okkar, erindið var nú að kaupa stækkunargler, ég nota auðvitað allskonar gleraugu, bæði alvöru gleraugu og líka þessi ódýru sem að eru alveg ágæt í flestum tilvikum, nema þegar að ég ætla að reyna að sjá hvað takkarnir á myndavélinni minni þýða.
Nú eftir mikið rölt í búðunum, þá tókst mér að finna eina búð sem að seldu stækkunargler, ekki nóg með það, ég get líka notað stækkunarglerið sem vasaljós, fékk batterí með, get þá athugað takkana á myndavélinni minni í kolsvarta myrkri, að tala um að slá tvær flugur í einu höggi.
Í gleði minni yfir stækkunarglerinu, sem að er líka vasaljós, ákvað ég að gera smá innkaup í matarbúðinni.
Þar gerði ég þessi frábæru kaup, eftir að hafa hent kaffi og klósettpappir í körfuna hjá mér, þá rekst ég á flotta plastbauka, einn var í laginu eins og hvítlaukur, einn var eins og venjulegur laukur, og svo var einn eins og sítróna.
Mér sýndist standa á verðmiðanum að allir ættu að kosta þrjátíu krónur, ég hefði átt að taka upp stækkunarglerið, en þegar að ég kom að kassanum, þá kostaði hver baukur þrjátíu krónur, en auðvitað lét ég það ekkert á mig fá, og keypti alla þrjá.
Og núna er hvítlaukurinn minn kominn í baukinn sinn, laukurinn er í sínum bauk. Því miður átti ég bara hálfa sítrónu, en þessi hálfa sítróna er líka kominn í fagur gulan sítrónubauk.
Á milli þess sem að ég baka kanilsnúða, eða rúlla kjötbollur, þá er ég að hreinsa til í skápum og skúffum eina ferðina enn. Það er ótrúlegt hvað safnast að manni. En núna fær Hjálpræðisherinn ekkert frá mér, núna tek ég myndir af öllu,og set inná netið, því að núna vil ég fá peninga fyrir fötin mín.
Ég las um í morgunblaðinu okkar, að á sama stað sem að ég sel mitt hafurtask, þar voru seldir gamlir útgengnir táfýlu skór, sem að Christer Pettersson sem að var gruaður um morðið á Palme, hafði gengið í, fyrir sjö þúsund sænskar krónur.
Nú læt ég þetta gott heita, óska öllum góðs dags.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2009 | 20:11
Snúðabakstur
Ég sé að margir skrifa um mat hérna. Ég ætla að skrifa smávegis um bakstur, en eins og allir vita, þá þarf sérstaka hæfileika til þess að baka vel útlítandi kökur, sem að eru um leið bragðgóðar.
Ég er búin að uppgötva að ég er bara með þeim betri í snúða bakstri. Ég held að fáir hafi séð fallegri snúða, en þá sem að ég bakaði í dag.
Ég fór eftir Amerískri uppskrift, og eins og að þið vitið þá er nú allt svo stórt í Ameríkunni, snúðarnir mínir urðu líka stórir, lyftu sér eftir kúnstarinnar reglum, og ilmuðu eins og snúðarnir í Ameríkunni.
Ég nenni ekki að taka myndir af snúðunum, en geri það næst, og spái því að flestir fái vatn í munninn við þá sjón.
Mikið annað hef ég ekki afrekað, enda er ég nýkomin heim, eftir annasama viku, og frekar leiðinlegt veður.
Auðvitað er haustið komið til okkar hérna í Malmö, en í dag var góður haustdagur, sól öðru hvoru, og fallegu haust litirnir eru farnir að koma fram á trjám og öðrum gróðri.
Ég læt þetta gott heita(óttalegt röfl er þetta í kerlingunni) hugsið þið. En þar sem að enginn annar hrósar mér, þá verð ég að gera það sjálf.
Óska öllum góðrar nætur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2009 | 08:53
Annasamir dagar í Malmö
Í dag er þetta fína haustveður, í gær var sama veður. Það er sól og frekar hlýtt á daginn, svo verður nokkuð kalt á nóttinni.
Ég hef verið dugleg þessa frívikuna, þó svo að ég seigi sjálf frá, eins gott að ég láti fólk vita af þessum dugnaði mínum, hef á tilfinningunni að flestir sem að þekkja mig, haldi að ég liggi bara í leti hérna heima í litla húsinu okkar.
Á miðvikudaginn bakaði ég, og árangurinn varð frábær, en ég bakaði kanelsnúða sem að urðu svo góðir að þeir hreinlega bráðnuðu í munninum á þeim sem að fengu að smakka þá.
Hans á fyrstu hæðinni, sem að gerði lítið úr fyrri bakstur minn af kanelsnúðum hélt að ég hefði keypt snúðana, og leit á mig með virðingarsvip þegar að ég útskýrði fyrir honum að ég hefði nú hnoðað deigið sjálf.
Ég bakaði líka brauð, svo kallað, en það eru snúðar fylltir með mjúkosti, þessir frábæru snúðar eru borðaðir með hvítlauksolíu, sem að ég bý til sjálf(hvað annað) ég pressa hvítlauk í olíu, set salt og pipar og smá ögn af Sambal Olek. Þetta er gott með snúðunum, og flest öllu brauði og grænmeti.
Í gær bjó ég til kjötbollur, pínulitlar eins og að þið kaupið í Ikea, nema að mínar urðu náttúrlega mikið betri en þeirra kjötbollur, sem að ég hef grun um að pínulitlir Kínverjar eða Tælendingar rúlli á akkorði .
En í gær prófaði ég að setja Kornflex í kjötbollurnar, í staðinn fyrir rasp, og árangurinn varð það góður, að ég hér eftir set bara Kornflex í mínar kjötbollur og hananú.
Ekki veit ég hvað ég á eftir að afreka í dag, annað en að langur göngutúr í fallega haust veðrinu er næst á dagskrá hjá mér.
Óska öllum góðs dags.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2009 | 09:05
Mig vantar engar fokking nærbuxur, eða hrukkukrem
Jæja þá er ég komin heim í rólegheitin, eftir stress og lítinn svefn úti á sjó.
Það er ekki mikið sem að truflar mig hérna í litla húsinu okkar, nema síminn, sem að hringir óspart, og eru það mest fólk sem að er að reyna að plata mig til að kaupa allskyns óþarfa.
Í gær hringdi ung stúlka(eftir röddinni að dæma)og spurði hvort að ég vildi ekki fá sendar nærbuxur, þær fyrstu áttu að vera gjöf til mín, svo átti ég að kaupa nokkur pör fyrir afar hagstætt verð. Nú vil ég ekki fá neinar fokking nærbuxur, og ég er með allar skúffur fullar af nærbuxum, og ég vel út mínar nærbuxur sjálf og hananú.
Ein hringdi og vildi senda mér smá túpu af hrukkukremi, svo gat ég pantað stóra túpu eftir að hafa prófað innihald litlu túpunnar. Hvernig gat hún vitað að ég þyrfti hrukkukrem, er leitað að kellingum á vissum viðkvæmum öldrum og þær gabbaðar til þess að kaupa vasilín í flottum umbúðum. Ég þakkaði ekki einu sinni fyrir boðið, ég sagðist ekki vera með eina einustu hrukku í mínu fagra smetti, og lagði á, já, já smálygar eru ekki saknæmar.
Og svo hringdi hann frá rafmagnsveitunni, hann heilsaði eins og að við værum nánir vinir, sem að drykkjum kaffi saman á hverjum deigi, en þá var ég búin að fá nóg af þessu fólki, og vildi alls ekki taka þátt í samtalinu um rafmagnsreikningana mína.
En svona fyrir utan það að vera pirruð út í þessi grey sem að reyna að auðgast á því að selja okkur alls kyns drasl, þá er lífið bara nokkuð gott. Úti skín sólin, og ætla ég að fara út í langan göngutúr, óska öllum góðs dags.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef ekki bloggað vikum saman, og verið löt við að lesa blogg hjá mínum kæru bloggvinum, hef eiginlega ekki lesið Moggann undanfarnar vikur, nema þá helstu fréttir og fasteigna auglýsingarnar.
Nú er haustið komið til okkar hérna á Skáni, mikið rok er hjá okkur, og þegar að ég var úti í gönguferð í dag, þá þakkaði ég mínum sæla fyrir að vera ekki lauflétt, annars hefði ég tekist á loft upp, og fokið eitthvað út í buskann. Svo að það er nú gott að vera soldið búttuð öðru hvoru, nema þegar að manni dettur í hug að máta föt.
Mér varð á að þvælast inn í Mollið, varð að hvíla mína lúnu fætur, og þá er tilvalið að labba um í rólegheitum í fatabúðunum, og svo er hægt að setjast niður öðru hvoru, yfirleitt eru stólar fyrir utan prófklefana, og þar sat ég dauðpirruð á sjálfri mér og yfirviktinni, því að ég líktist mest litlum fíl í öllu sem að ég mátaði, og ekki nóg með það, ég tók eftir því að ég var grænleit í framan í sumum speglunum, og er ég að velta fyrir mér hvort að ég eigi að hafa samband við búðareigendur, og benda þeim á hvað það sé áríðandi að vera með góða spegla, helst svona sem að fegra viðskiptavinina, og jafnvel geri þá grennri en þeir eru. Ég er örugg á því að salan myndi aukast.
Nú læt ég þetta gott heita, óska öllum góðs kvölds.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.8.2009 | 19:46
Mikil leti hefur kvalið mig..............................................................
Mikil leti hefur kvalið mig undanfarnar vikur, ég hef ekki bloggað, ég hef ekki nennt að lesa blogg hjá öðrum, rétt litið inná fésabókina, og þá til þess að gera alls konar hálf kjánalegar þrautir, og komist að þeirri niðurstöðu að ég er ekki eins sniðug og ég hélt, nema að það sé ekkert að marka þessa fésabók(er náttúrlega örugg á því að fésabókin getur ekki reiknað rétt út mínar gáfur).
Sólin er búin að hlýja okkur vel undanfarna daga, það liggur við að það sé búið að vera of heitt, en ég hef unað mér vel í hitanum, og legið flesta daga úti í garðinum, fáklædd og vel smurð með sólarvarnarkremum. Ég er auðvitað orðin kaffibrún, og afar freknótt, en í dag er mér sama um freknurnar, það var verra að lifa með þær þegar að ég var yngri.
Eiginlega er ég búin að vera eins og hann Palli sem að varð einn í heiminum, þessa vikuna sem að ég er búin að vera heima. Gunnel á fyrstu hæðinni er á endalausu kallafari, hún kemur heim öðru hvoru til þess að ná í hrein föt, og líta eftir póstinum, reyndar dró hún upp nokkra vel vaxna arfa í gær, og varpaði ég öndinni léttara þegar að ég sá það(var orðin dauðhrædd um að þurfa sjálf að fara að eltast við arfann) Hans vökvar blómin með hangandi hendi, honum líður illa þessa dagana, enginn drekkur kaffi með honum á morgnana, enginn smyr brauðið hans, engin grillar með honum á kvöldin, enginn slær í borðið með honum og blótar útlendingum sem að tröllríða landinu, því að hún sem að tók þátt í þessu með honum smyr núna brauðið fyrir annan mann og á öðrum stað.
Ég legg á stað í vinnuferð á morgun, og óska öllum góðrar viku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Heidi Helga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar