Færsluflokkur: Dægurmál

Um hitt og þetta

Ég er orðin löt að blogga, en stundum er svo mikið að gera hjá mér, á mínu litla heimili, að ég hef engann tíma til að blogga. Auðvitað er þetta hálfgert plat(ég er bara að drepast úr leti þessa dagana).

Ég er búin að líta yfir helstu fréttir og blogg, og sé að í dag er verið að mótmæla einhverju heima í Reykjavíkinni.

 Ég dáist að fólki sem að hefur dug og þrek til að mótmæla öllu því sem að er óréttlátt, ef að ég væri heima á Íslandi, þá myndi ég mótmæla öllu því sem að hægt væri að mótmæla.

Eins og að ég hef minnst á í blogginu hjá mér, þá er ég á fullu í að framleiða Beiska dropa(ég skaust frá núna og hristi upp í flöskunni)Kominn er fallegur litur á það sem að einu sinni var venjulegur litlaus vodki, grasmylsnan er eiginlega orðin að engu, lyktin er ekki góð, en ef að ég man rétt þá er óttaleg fíla af Beiskum dropum(þeim sem að eru keyptir í ríkinu), enda á að drekka þá, ekki nota þá sem ilmvatn eða rakspíra. Ég læt ykkur vita hvað fólkinu finnst um þessa "dropa" mína, vona bara að enginn fái bullandi niðurgang af dropunum mínum.

Í dag fékk ég pakka frá Íslandi, systir mín og dóttir hennar sendu mér hina frægu "Dagvaktina" og úrval af Íslenskum lögum, ásamt mynd af litlum og fallegum strák, sem að systurdóttirin á, hann heitir Aron Máni, svolítið sérstök þessi nýju íslensku nöfn. Er virkilega hætt að skíra börnin heima Guðrúnu,Jón,Sigurð, og Sigríði  öll þessi gömlu heiðarlegu nöfn, sem að var svo létt að muna.

Nú slæ ég botninn í þetta, óska öllum góðrar nætur.


Beiskir dropar og rigning

Hérna í Svíþjóðinni er leiðinda veður, rok og rigning. Leiðinlegt veður hefur mikil áhrif á mína viðkvæmu sál(mér líður alltaf best í sól og sumaryl), sem dæmi um þessa viðkvæmni mína, þá skaust ég í mígandi rigningu í mollið, og þar voru útsölur í öllum búðum. Svona venjulega hefði ég með sælubrosi á vör kastað mér yfir öll fallegu fötin, sem að eru seld á hálfvirði í dag, en nei, ég skoðaði smávegis, mátaði ekki neitt, fór án þess að kaupa neitt(afar gott fyrir þunnleita budduna mína).

Svo leit ég inn í blómabúðina, er vön að kaupa afskorin blóm þegar að ég kem heim(ekki kaupir neinn blóm handa mér, verð að gera það sjálf), en þar var sama sagan, ég sá engin blóm sem að mér fannst virkilega falleg, og gekk tómhent út úr blómabúðinni.

En þegar að ég kom heim, þá bretti ég upp ermarnar, og fór að útbúa bruggun á Beiskum dropum, sem að er einn mest drukkni snafsinn hér á Skáni, þessi framleiðsla mín á þeim Beisku fór fram á eftirfarandi máta.

Ég opna flösku af vodka, í vodkann helli ég grasmylsnu, sem að ég keypti í brennivínsbúð sem að selur alls kyns grös og dropa fyrir svona framleiðslur. Auðvitað missti ég helling af grasmylsnunni niður á borðið(ég er ekki vön þessu)en ég bara sópaði því upp og hellti í vodkann, það gerir örugglega ekkert til, þó svo að smá brauðmylsna hafi lent með grasinu. Í lokin setti ég sex sykurmola, svo hristi ég þessa blöndu mína, og eftir tvær vikur á þetta að vera orðið að príma Beiskum dropum, og eftir tvær vikur á að vera mikið partý hjá okkur hérna í húsinu mínu, og ætla ég að bjóða gestunum okkar uppá heimatilbúna Beiska dropa.

Læt þetta gott heita, ætla að njóta mín vel undir teppi í sófanum, og horfa á sjónvarpið, vonandi verður veðrið betra á morgun.


Og þá er kominn miðvikudagur

Ég sit hérna snemma á miðvikudagsmorgni, og horfi á fréttir í morgun sjónvarpinu.

Mikið er fjallað um síðasta flugslysið, vélina sem hvarf á leið til Parísar. Hinir og þessir flugmenn og eitthvað annað innum flug, reyna að útskýra fyrir okkur hinum megins við skerminn, hvað það sé nú oftast öruggt að fljúga.

Ég sit stjörf og hlusta á þá, en finn um leið hvernig mín gamla flughræðsla dembist yfir mig, og ég sem að var farin að lagast af þessum skolla, en hugsa um leið, hvað ég sé nú heppin að þurfa ekki að setjast inn í flugvél næstu vikur.

Um leið hugsa ég um vesalings fólkið sem að var með vélinni sem að hvarf, hvað þetta hefur verið hræðilegt, enginn lifandi manneskja getur sett sig í þeirra spor.

Svo er talað svolítið um "svínapestina", greinilega er þessi flensa með skrítna nafninu, komin til Stokkhólms, vonandi sleppum við hérna í Malmö.

Á hverjum morgni er skrapað Triss, þau sem að skrapa Triss geta unnið frá fimmtíu þúsundundum til nokkra miljóna. Flestir vinna fimmtíu þúsund, og eru ánægðir með það, hef samt séð eina miðaldra kellingu sem að sýndi greinilega með miklum fílusvip,hvað hún var óánægð með vinninginn.

Ég hef líka séð konu komna yfir nírætt sem að skrapaði fram þrjár milljónir, án þess að sína svipbrigði, hún varð ekkert glöð, það virtist vera sem að henni leiddist þetta vesen, og sagði hún í lokin, að þetta skipti litlu máli með þessar milljónir, hún væri fyrir löngu  hætt að nota peninga, en að þessir peningar hefðu getað komið sér vel fyrir fimmtíu árum.

Læt þetta gott heita, óska öllum góðrar viku.

 


Bara um lífið í húsinu mínu

Það hefur verið mikil sól síðustu daga,ég undirrituð hef eiginlega flutt út í garðinn okkar, og sleikt sólina, unað mér við lestur spennandi bóka, í góðum félagskap nágranna minna á fyrstu hæðinni.

Fyrsta grillið var á laugardaginn. Hans grillaði svínakjötssneiðar, Gunnel sá um salat, og sauð kartöflur. Ég skolaði af jarðarberjum, og þeytti rjóma, þar sem að ég er þrælvön rjómaþeytingi frá að ég var smábarn, stóð á koll til að ná uppá eldhúsbekkinn, þá var rjóminn afskaplega mátulega þeyttur, og höfðu þau orð á því. Lítillát sem að ég nú er, gerði ég lítið úr þessu, sagði til dæmis að þetta væri enginn vandi(auðvitað vita allir að það er mikill vandi að þeyta rjóma rétt).

Með grillmatnum drukkum við ítalskt rautt vín, ég kenndi þeim að setja kók í vínið, og fannst Hans þetta vera með betri drykkjum sem að hann hafði smakkað, þau urðu svolítið hýr af víninu og kókinu, og endaði veislan okkar á því að Gunnel hljóp á eftir köttunum, sem að stelast inn í okkar garð, og pissa á blómin hennar Gunnelar, en kettirnir unnu þau kapphlaup, mátti samt litlu muna að Gunnel tækist að ná í skottið á þeim, auðvitað var það víninu með kókinu að þakka, mikill kraftadrykkur.

Ég er að undirbúa vinnuferð, vil náttúrlega ekki fara frá þessu fína veðri, og er svo illa innrætt, að ég vonast til þess að það rigni á morgun.

Óska öllum góðs kvölds, og góðrar nætur.


Samlokur geta víst valdið sálrænum sköðum, eða ????????????????

Hann fær örugglega drjúgar skaðabætur, það virðist vera sem að það sé hægt að fá bætur fyrir ótrúlegustu hluti í Ameríkunni.

 Ég vildi að það væri jafn létt hér í Svíþjóð, ég gæti vel hugsað mér að fara yfir á sálartetrinu, við það eitt að bíta í samloku, og lifa svo góðu lífi á skaðabótunum.


mbl.is Samloka veldur sálrænum skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef að þetta er sönn frétt, þá er það góð frétt

Ef að þetta er sönn frétt, þá er það góð frétt. Ævin hjá þessari vesalings konu hefur ekki verið svo skemmtileg hingað til.

 Og ef að henni hefur tekist að fá trú á hinu kyninu aftur, eftir þá meðferð sem að hún þurfti að þola árum saman af föður sínum, og jafnvel fleirum(ég hef alltaf efast um að pabbi hennar hafi verið einn um þetta), þá er bara að gleðjast yfir því, og um leið að dáðst að því hvað manneskjum getur tekist að loka á hörmulega fortíð, og geta um leið tekið á móti framtíðinni með opnum örmum.

Við hin, sem að höfum ekki þurft að ganga í gegn um sömu raunir, gætum lært á þessu, við gætum hætt að velta okkur upp úr gömlum leiðindahlutum, því að hver nýr dagur gefur nýtt tækifæri, þess vegna eigum við líka að taka á móti framtíðinni með opnum örmum.


mbl.is Elisabeth Fritzl finnur ástina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendi SMS

Það liggur við að ég efist um andlegt heilbrigði fólks sem að lætur sér detta í hug að senda SMS um leið og það keyrir bíl.

Um leið finnst mér virkilega óhuggulegt þegar að fólk er malandi í gemsa um leið og það keyrir, og sjaldnast er það um nokkuð áríðandi, oft bara blaður um daginn og veginn,þannig að samtalið gæti beðið þangað til að viðkomandi aðili hefur stoppað bílinn.


mbl.is Sendi SMS á meðan hann ók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja kellingin hún Susan Boyle

Aumingja kellingin, margir verða klikkaðir af minna álagi en því sem að hún hefur þurft að þola síðustu vikur.

Frá því að vera gráhærð kelling með óskaplega villimannslegar augnabrúnir, sem að bjó ein með kettinum sínum, verður hún allt í einu stjarna yfir eina nótt.

Og að vera með blaðamenn hokrandi í kring um sig, sem að sitja jafnvel fyrir henni þegar að hún skíst á klósettið, svona til að ná góðri mynd af henni þar, getur ekki verið skemmtilegt fyrir konu sem að aldrei hefur gert mikið vesen af sér.

Vonandi tekst henni að ná góðri heilsu aftur, ekki þarf hún að hafa áhyggjur af reikningum, þar sem að ég hef lesið um ótrúlegar upphæðir sem að hún fær á næstunni, og er henni það vel unnað.

 


mbl.is Susan Boyle á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laugardagsþvæla

Þá er komin laugardagur hérna hjá mér, en klukkan hjá okkur í Svíþjóðinni er tveimur tímum á undan Íslenskum tíma. Eiginlega finnst mér þetta rugl með klukkuna vera mikil vitleysa, lendi alltaf í sömu vandræðum tvisvar á ári, þegar að verið er að breyta klukkunni, man ekki alltaf eftir að breyta öllum klukkum hérna hjá mér, og þarf stundum að hringja í klukkuna til að fullvissa mig um að klukkan sé tvö, en ekki eitt.

Í gær á föstudegi skrapp ég í bæinn, það var gott veður, og mikið fólk í bænum, það var komin föstudagsstemming í fólkið, langar biðraðir í brennivínsbúðinni(ég sá það þegar að ég labbaði framhjá búðinni, og kíkti inn um gluggana), fyrir utan brennivínsbúðina stóðu nokkrir utangarðsmenn, og báðu vegfarendur um aura fyrir strætó, auðvitað ætluðu þeir ekkert í strætó, þeim langaði bara í hvítasunnuhressingu eins og öllum hinum, sem að komu drekkhlaðnir út úr vínbúðinni(fínna að seiga vínbúð), ég er ekki frá því að þeim hafi tekist að ná sér þó nokkrar krónur, fólk er gjafmildara um helgar.

En í þessari bæjarferð minni fór ég inn í ævintýrabúð fyrir fólk sem að vill læra að spá, eða að láta spá fyrir sér.Ég sjálf var ekki í neinum spáhugleiðingum, en ég var að kaupa draumadót fyrir vinkonu mína heima á Íslandi, en verð að viðurkenna að ég missti mig hreinlega í öllu þessu dularfulla dóti, áður en að ég vissi af á var ég farin að skoða spáspil, og fann meira að seiga bók á hálfvirði, kennslubók í spilaspádómum. Kannski fer ég á morgun og kaupi hana, hver veit nema að ég sé gott efni í spákonu, kannski er ég með svakalega spáhæfileika, svona ef að mér tekst að læra utanað hvað spilin tákna. Á ég eftir að enda sem hin dularfulla spákonan Heidi, sem að tek á móti fólki, með svartan kött liggjandi hjá mér, og kristalkúlu á borði fyrir framan mig (ég sá að spáfólkið sem að var með auglýsingar í búðinni, tók 350 krónur sænskar fyrir 30 mínútur), miðað við þær tekjur, þá er nú ekki amalegt að spá í nokkra tíma á dag, og þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af skattinum, allt greinilega svartir peningar, því að hver vill fá kvittun frá spákellingu.

Ég fullvissa ykkur sem að lesa þetta, að ég er ekki dottin í það. En ætla aftur á móti að óska ykkur góðrar og gleðilegrar hvítasunnu.


Föstudagsrugl

Og þá er kominn föstudagur. Veðrið gæti ekki verið betra hérna í Malmöborg, og þessi veðurblíða á að endast yfir hvítasunnuna.

Ég sem að skrifa þessar línur, sit ennþá í náttfötum með morgunkaffið mitt, ég sef alltaf svo lengi á morgnana, er næturmanneskja, get setið uppi á kvöldin, en finnst fátt betra en að fá að sofa út á morgnana, svona þegar að ég er í fríi frá vinnunni.

Annars skeður lítið hérna, annað en þetta venjulega, gamlar konur og gamlir menn eru rænd, annað hvort úti á götu, eða að það er ráðist inn á heimili þeirra. Enginn hefur verið drepinn síðustu daga, að mér vitandi. Þetta lætur kuldalega, en svona er daglega lífið í svolítið stærri borg en  Reykjavíkinni okkar, samt finnst mér nokkuð mikið ske þar, miðað við hausatölu.

Ég er búin að sitja við lestur bloggara hérna á Moggablogginu, margir feikilega góðir pennar eru hérna, verst hvað fólk gefst upp á að blogga, mér finnst ólíkt skemmtilega að vera hérna, en á þessari bansettu fjesbók, sem að er svo vinsæl að það hálfa væri nóg. Auðvitað kíki ég öðru hvoru inn þar, en finnst fjésbókin vera mest fyrir yngri kynslóðina, miðað við alla leikina sem að mörgum finnst svo gaman að. Ég er með fleiri tilboð frá hinum og þessum, í hvert skipti sem að ég lít inn, en verð að viðurkenna, að ég nenni ekki að opna þau, og hananú.

Ætla núna að fara að skvera mig upp, í föt, og jafnvel að greiða mér, áður en að ég skíst í bæinn, hver veit hvern maður getur hitt í bænum(svona smágrín).

Óska öllum góðs dags.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Heidi Helga

Höfundur

Heiður Helgadóttir
Heiður Helgadóttir
Kona á besta aldri, konur eru jú alltaf á besta aldri, ég er frekar stutt, ég þykist alltaf vera svolítið léttari en ég er, og skónúmer mitt er 39.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • bild1
  • 4130 P 1282609870763
  • 4085 P 1282005836254
  • 4071 P 1281936149867
  • bild1
Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 99407

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband